Klippa allan daginn fyrir hjartað 20. júlí 2012 10:30 Emil Ólafsson og hársnyrtar Sjoppunnar minna fólk á mikilvægi hjartans í Hjartagarðinum, milli Laugavegs og Hverfisgötu, í dag. Fréttablaðið/Stefán „
Pabbi minn fékk hjartatruflanir fyrir tveimur vikum síðan. Ég ætlaði að halda klippi-maraþonið upp á gamanið en ákvað að snúa þessu yfir í góðgerðarmál," segir Emil Ólafsson, annar eigandi hársnyrtistofunnar Sjoppunnar sem stendur fyrir klippingum gegn frjálsum framlögum og sumargleði í Hjartagarðinum til styrktar Hjartaheill í dag. Undanfarin tvö ár hafa hársnyrtar stofunnar safnað fyrir Krabbameinsfélagið með svipuðu sniði. „Kristján Aage, sem á stofuna með mér, missti mömmu sína fyrir tveimur árum úr krabbameini," segir hann og bætir við: „Stofan gengur vel og við viljum gefa eitthvað til baka, til þeirra sem hafa fylgt okkur í gegnum lífið." Sumarhátíðin hefst klukkan tólf á hádegi og stendur fram eftir kvöldi. Tónlistarveitan Gogoyoko leikur lifandi tónlist meðan starfsmenn Stofunnar snyrta hár. Grillaður kjúklingur verður í boði og samkeppnisaðilarnir Hemmi og Valdi, Lebowski og Faktorý sjá gestum fyrir léttum veitingum ásamt Vífilfelli. Allir sem láta peninga af hendi rakna taka þátt í veglegu happdrætti. Emil hrósar Hjartaheillum, landssamtökum hjartasjúklinga á Íslandi, fyrir gott starf og með hátíðinni vill hann minna fólk á mikilvægi hjartans og óviðeigandi sparnað í heilbrigðiskerfinu. „Ég beið eftir skoðun í þrjú korter á bráðamóttöku með mjög öran hjartslátt og fékk rafvendingu eftir tæpa sex tíma," segir faðir Emils um upplifun sína, en hann er afar þakklátur fyrir góða þjónustu starfsfólks sjúkrahússins. - hþt
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Fleiri fréttir Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Sjá meira