Gaf lögin sín í bandaríska mynd 6. desember 2012 07:00 fimm lög í About Sarah Ingólfur Þór Árnason úr Indigó á tónlistina í myndinni About Sarah. fréttablaðið/valli
Ingólfur Þór Árnason, úr hljómsveitinni Indigó, var fenginn til að sjá um tónlistina fyrir bandarísku kvikmyndina About Sarah í leikstjórn Elenor Gaver. Myndin, sem er sannsöguleg, gerist í New York og fjallar um nítján ára stúlku sem lést af völdum eiturlyfja. „Ég var að smíða leikmynd í Noah-myndinni fyrir True North. Það var haldið partí þegar tökurnar voru að hefjast og þar hitti ég Sam sem er prófessor og kennir myndlist í Yale,“ segir Ingólfur Þór, spurður út í tilurð verkefnisins. „Ég lét hann fá „demó“ af nýjustu plötunni sem ég er að taka upp, því við vorum ágætis félagar. Hann lætur konuna sína hafa það, sem þekkir þennan leikstjóra úti í New York.“ Ingólfur Þór fékk skömmu síðar bréf frá Elenor Gaver og ákvað í framhaldinu að láta hana fá lögin af plötunni sinni endurgjaldslaust. „Mér fannst þetta skemmtilegt verkefni. Það eru ungir krakkar að leika í þessu, vinir þessarar stelpu sem lést af völdum heróíns, og þetta var gert fyrir lítinn pening.“ Fimm lög frá Indigó hljóma í myndinni. Hún er í eftirvinnslu og verður tilbúin um miðjan desember. Á næsta ári verður hún sýnd á kvikmyndahátíðunum í Berlín, Sundance og víðar. Ingólfur Þór er búinn að sjá grófklippta útgáfu myndarinnar og leist vel á. „Ég sýndi fimmtán ára dóttur minni myndina og henni fannst hún fín. Þá er ég ánægður.“ Öll lögin verða á plötu Indigó sem kemur út næsta vor en sú síðasta kom út fyrir fimm árum. Upptökustjóri er Halldór Björnsson úr hljómsveitinni Legend. - fb
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira