Hækkun kemur sér illa fyrir ráðstefnuhús Hörpu 17. ágúst 2012 09:15 Björk Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Reykjavík Backpackers segir fyrirhugaðar hækkanir verulega misráðnar. fréttablaðið/stefán
Forsvarsmenn í ferðaþjónustu telja mun líklegra að fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á gistingu muni leiða til tekjutaps fyrir ríkissjóð en að hún skili meiru í kassann. Tilgangurinn með breytingunni er þó sagður að auka tekjur um tvo og hálfan milljarð. Árni Gunnarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), segir einnig að áformin um að koma Hörpu á kortið sem ráðstefnuhúsi verði hæpnari verði þessi leið farin. „Hvergi er meiri samkeppni en um ráðstefnugesti sem eru meðal verðmætustu gesta. 17,3% verðhækkun til þeirra mun ekki fjölga gestum í Hörpu, sá markaður mun hrynja,“ segir í fréttatilkynningu sem SAF hefur sent frá sér. Árni segir að í 29 Evrópuríkjum af 32 sé gisting í neðra þrepi virðisaukaskatts. „Þá hefur oft verið talað um að í Danmörku sé 25 prósenta virðisaukaskattur en þá gleymist að geta þess að þar er aðeins eitt skattþrep,“ segir hann. „Hins vegar má geta þess að Þjóðverjar hafa nýlega farið þá leið að lækka skatt á gistingu úr nítján prósentum í sjö.“ „Það virðist ekki hafa verið horft til heildarmyndarinnar,“ segir hann enn fremur. „Ég tel að óneitanlega hafi þetta í för með sér minni eftirspurn og ef ferðaþjónustan dregst saman, þó ekki væri nema um nokkur prósentubrot, þá eru þessir tveir og hálfur milljarðar farnir.“ Björk Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík Backpackers, er þegar farin að spá í áhrifin sem þessar breytingar hefðu í för með sér. „Ef gistingin hækkar um 17,3 prósent þá er verð á gistingu hjá fyrirtækjum eins og okkar sambærilegt dýrustu ferðamannaborgum heims eins og New York, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Helsinki,“ segir hún. „Við megum ekki gleyma því að ferðamaðurinn er með ákveðnar ráðstöfunartekjur og hann ákveður ferðir sínar að miklu leyti út frá þeim. Það er því miður ekki svo að menn ákveði bara sisvona að fara til Íslands og spyrji svo um reikninginn að dvöl lokinni. Og þetta hefur líka þau áhrif að þegar fólk þarf að eyða meira af ráðstöfunarfé sínu í gistingu þá eyðir það minna í aðra þjónustu og vörur.“jse@frettabladid.is
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira