Eyjólfur: Viljum gefa yngri leikmönnum reynslu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. september 2012 12:11 Tómas Ingi Tómasson og Eyjólfur Sverrisson. Mynd/Anton
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 liðs karla, segir að hann hafi kosið frekar að gefa yngri leikmönnum tækifæri í lokaleik Íslands í riðlinum en að velja bestu leikmennina sem völ er á. „Það eru fullt af góðum leikmönnum sem eru á eldra árinu sem eiga erindi í U-21 landsliðið nú," sagði Eyjólfur í samtali við Hjört Hjartarson á X-inu 977. „En við erum að breyta liðinu til að undirbúa það fyrir næstu keppni. Við höfum ekki riðið feitum hesti frá þessari keppni og hafa þó margir leikmenn fengið tækifæri með liðinu. Við höfum samt ekki sýnt góða leiki og ekki staðið okkur nógu vel," sagði hann. „Við viljum fá leikmenn inn í hópinn til að gefa þeim smá reynslu. Við viljum nýta þetta tækifæri til að undirbúa okkur sem best fyrir næstu keppni enda skiptir þessi leikur ekki mjög miklu máli fyrir núverandi keppni," sagði Eyjólfur en Ísland er neðst í sínum riðli með þrjú stig fyrir lokaumferðina. „Það eru mjög fáir æfingaleikir hjá U-21 landsliðinu og ekkert fast í hendi enn sem komið er hvað það varðar." Sem fyrr segir eru margir leikmenn ekki valdir sem eru gjaldgengir í liðið. Meðal þeirra má nefna Rúnar Már Sigurjónsson, Björn Daníel Sverrisson, Kolbein Kárason og Kristinn Jónsson. „Þetta eru leikmenn sem hefðu getað nýst liðinu mjög vel, enda góðir leikmenn. En við erum að reyna að nýta leikinn fyrir annað. Belgarnir eru að gera það sama við og hafa valið fullt af yngri leikmönnum í sitt lið."
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Níu nýliðar í U-21 landsliðinu Eyjólfur Sverrisson hefur valið U-21 landslið Íslands sem mætir Belgíu í undankeppni EM 2013. Þetta er síðasti leikur Íslands í riðlinum. 3. september 2012 10:47 Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Ipswich - Liverpool | Kemur fyrsti sigurinn? Enski boltinn Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur Handbolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira
Níu nýliðar í U-21 landsliðinu Eyjólfur Sverrisson hefur valið U-21 landslið Íslands sem mætir Belgíu í undankeppni EM 2013. Þetta er síðasti leikur Íslands í riðlinum. 3. september 2012 10:47