Innlent

Ríkið styðji byltingu í tækjamálum skóla

Á næstu árum munu grunnskólar landsins þurfa að endurnýja tölvu- og tækjakost til að fylgja þróun. Skólastjóri Melaskóla leggur til að ríkið komi að kostnaði við umskiptin. Tilraunaverkefni, líkt og í Vogaskóla í Reykjavík, hafa gefið góða raun.
Á næstu árum munu grunnskólar landsins þurfa að endurnýja tölvu- og tækjakost til að fylgja þróun. Skólastjóri Melaskóla leggur til að ríkið komi að kostnaði við umskiptin. Tilraunaverkefni, líkt og í Vogaskóla í Reykjavík, hafa gefið góða raun.
Skólastjóri Melaskóla telur rétt að íhuga hvort stefnubreytingar sé þörf í tækni- og námsgagnaútgáfu fyrir grunnskóla. Íhuga mætti að færa hefðbundið námsefni yfir í stafrænt form fyrir spjaldtölvur og lesbretti. Þannig sparist fjármunir, sem nýta mætti til að aðstoða skólana við að endurnýja tölvur og tækjabúnað, sem er ein af frumforsendum þess að nýta nýja tækni í skólastarfi.

Eins og fram kom í Fréttablaðinu er stór hluti tölvubúnaðar í grunnskólum í Reykjavík úreltur og úr sér genginn. „Við erum nýbúin að fá fimmtán nýjar fartölvur til okkar, en það er ekki nóg,“ segir Björn Ottesen Pétursson, skólastjóri Melaskóla, í samtali við Fréttablaðið. Þegar litið sé til framtíðar sé þörf á gagngerri endurnýjun í tölvukosti.

„Ég hef áhyggjur af því að kostnaðurinn við að koma málum í rétt horf á næstu árum verði sveitarfélögunum ofviða. Þess vegna velti ég því fyrir mér hvort ríki og sveitarfélög geti ekki unnið saman í þessum málum.“

Ríkið leggur þegar fjármuni í grunnskólakerfið með námsgagnaútgáfu, en Björn segir að ef hluti af námsefni yrði settur á stafrænt form hlytist af því sparnaður sem hægt væri að nýta til tækjakaupa.

„Stofnkostnaður yrði vissulega gífurlegur, en það er þörf á því að mynda stefnu til framtíðar í þessum málum.“

Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundaráðs í Reykjavík, segir aðspurð að um áhugaverða hugmynd sé að ræða, enda hafi tilraunaverkefni með nýja tækni og nýstárlega kennsluhætti lofað afar góðu. „Lausnin felst ekki einfaldlega í að kaupa iPad. Því að ný tæki skapa ekki nýtt skólastarf ef ekki verður framþróun í kennsluháttum,“ segir Oddný.

„Við verðum að ákveða hvað við viljum gera og hvernig við getum ýtt undir sjálfstæði barna og unglinga til að hafa áhrif á sitt nám. Það er markmiðið, óháð tækjum og tólum, en ef tæknin getur hjálpað okkur til þess er það frábært.“ Aðspurð segir Oddný að sveitarstjórnir hafi ekki mikið svigrúm til þess að fjárfesta í umskiptum í tækjabúnaði.

„Þannig er ég mjög opin fyrir því að skoða þessa hugmynd, að menntamálayfirvöld breyti flæði fjármagns frá hefðbundinni útgáfu námsefnis yfir í kaup á nýjum tækjabúnaði. En það sem mestu máli skiptir er innleiðing nýrra kennsluhátta og tækni getur flýtt fyrir því.“

thorgils@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×