Atvinnuleysi minnkaði lítillega í janúar 15. febrúar 2012 07:00 Meirihluti þeirra 900 sem tóku þátt í námsátakinu „Nám er vinnandi vegur“ hélt áfram í námi eftir áramót og fór því af atvinnuleysisskrá. Fréttablaðið/vilhelm
Atvinnuleysi mældist 7,2 prósent í janúar og lækkaði um 0,1 prósentustig frá því í desember. Þetta kemur fram í nýjum tölum Vinnumálastofnunar um ástand á vinnumarkaði. Atvinnulausir voru að meðaltali 11.452 í janúar og fækkaði um 308 frá desember. Atvinnulausum körlum fjölgaði um 61 að meðaltali í mánuðinum en konum fækkaði um 369. Þá fækkaði atvinnulausum á höfuðborgarsvæðinu um 313 en fjölgaði um fimm á landsbyggðinni. Mest atvinnuleysi er sem fyrr á Suðurnesjum, 12,5 prósent, en minnst á Norðurlandi vestra þar sem það er 2,8 prósent. Atvinnuleysi er 7,5 prósent meðal karla en 6,8 prósent meðal kvenna. Fram kemur í tilkynningu Vinnumálastofnunar að atvinnuleitendum fjölgi yfirleitt nokkuð á milli desember og janúar. Fækkunin nú skýrist aðallega af tvennu. Annars vegar því að flestir þeirra ríflega 900 einstaklinga sem tóku þátt í námsátakinu „Nám er vinnandi vegur“ halda áfram námi í vor og fóru því af atvinnuleysisskrá um áramótin. Hins vegar rann út um áramótin bráðabirgðaákvæði um minnkað starfshlutfall en samstundis afskráðust af atvinnuleysisskrá nærri 500 manns sem höfðu fengið greiddar atvinnuleysisbætur með hlutastarfi. Þá telur Vinnumálastofnun líklegt að atvinnuleysi aukist í febrúar og verði á bilinu 7,1 til 7,4 prósent.- mþl
Mest lesið SAS fellir niður allt flug til Grænlands Erlent Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Innlent Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Innlent Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Innlent Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Innlent Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Innlent Hundruð handtekin vegna átaka í kjölfar sigurs PSG Erlent Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Innlent Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Innlent „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Innlent Fleiri fréttir Leigufélög gætu gleypt húsnæðismarkaðinn Andlát í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt Vinnumarkaður, verðbólga og ESB í Sprengisandi í dag Skjálfti upp á 2,8 við Hellisheiði Fræsa og malbika Vesturlandsveg í kvöld Ók rafmagnshjólinu á bíl í 101 Áverkar geti sagt til um kraft sem er beitt í kyrkingu Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða „Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Engir Framsóknarfingur í kökukrúsinni í Kópavogi Nágranni fluttur á HSS eftir bruna í Vogum Skoða veitingu íslensks ríkisborgararéttar Segir magnað að fá að sjá verk Bjarkar á Listahátíð „Trúi varla að Viðreisn sé á móti því að flagga hinsegin fánanum“ Takmarkað aðgengi að P2-bílastæðum vegna malbikunar Tjá sig ekki um málið Aðeins tímaspursmál hvenær kennitölur verði notaðar í stóra árás Ósátt með áform meirihlutans Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjá meira