Besta Akureyri í heimi 31. ágúst 2012 10:42 Akureyri er klárlega besta Akureyri í heimi.
Fyrsta minning mín frá Akureyri er einhvern veginn svona: Ég var átta ára og að leika mér á glænýja eldrauða fjögurra gíra hrútastýris-Superia hjólinu mínu fyrir utan heima. Ég var nýfluttur í bæinn og þekkti fáa. Vatt sér þá að mér hjólbeinóttur náungi sem var að bera út Íslending og spurði hvort hann mætti prófa. Svarið var einfalt: "Nei, ég má ekki lána." Þetta hefur verið rifjað upp reglulega í þau 32 ár sem liðin eru því blaðberinn varð síðar besti vinur minn. Við krakkarnir á Akureyri áttum bara tvennar buxur. Stuttbuxur fyrir sumrin og snjóbuxur fyrir veturna. Á Akureyri var veðrið nefnilega eins og það á að vera; með skörpum skilum milli árstíða. Það rigndi aldrei á Akureyri og ekki minnist ég þess að þar hafi vindur blásið að ráði. Bara sól eða snjókoma. Ég man fyrsta kossinn. Bak við bankann við Ráðhústorgið. Ég man þegar ég stal frostpinna í fyrsta (og segjum eina) skiptið. Í KEA við Brekkugötu. Ég man fyrsta sopann. Hann var vondur en samt góður á sinn hátt. Ég var í KA og hataði Þór. Auðvitað hataði ég ekki Þór en þóttist gera það. Rígurinn milli félaganna er nauðsynlegur. Baraflokkurinn var mín hljómsveit og við hjólbeinótti gaurinn hlustuðum á Catcher comin? og skoðuðum klámfengið plötuumslagið eins og enginn væri morgundagurinn. Akureyri var stór fyrir litla stráka en minnkaði auðvitað eftir því sem árin liðu og við urðum stærri. KEA var með búð á nánast hverju götuhorni og annar hver bæjarbúi vann hjá Sambandinu. En svo hættu Sambandið og KEA-búðirnar og þá fór ég suður. Ég sem aldrei ætlaði suður. Aldrei fór ég aldrei suður. Nú fer ég reglulega norður og stel frostpinna og geri allt hitt sem ég gerði áður. Ég er ferðamaður í gamla bænum mínum sem allt í einu er orðinn 150 ára en ber aldurinn einstaklega vel og lítur líklega betur út en nokkurn tíma fyrr. Allt þetta háskólafólk, þessar verslanir, þessi menning. Akureyri er klárlega besta Akureyri í heimi og ég er til í að rífast við hvern þann mann sem vill mótmæla því. Til hamingju Íslendingar með Akureyri.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira