Rómantík, Dramatík og Erótík 16. ágúst 2012 18:06 Árni Heiðar og Gissur Páll
Tenórsöngvarinn Gissur Páll Gissurarson og píanóleikarinn Árni Heiðar Karlsson blása til stofutónleika að kvöldi föstudags. Þar munu þeir flytja falleg lög í betri stofunni að Smáragötu 7 í Reykjavík. Annað kvöld fara fram stofutónleikar að Smáragötu 7 í Reykjavík. Þar munu þeir Gissur Páll Gissurarson tenórsöngvari og Árni Heiðar Karlsson píanóleikari flytja perlur fyrir gesti. Aðdragandann að tónleikunum má rekja til þess þegar þeir Gissur og Árni Heiðar voru staddir saman á karlakvöldi fyrir nokkru. Þeir félagarnir taka sér glaðir frí frá æfingum til að rifja upp þá sögu. „Þetta var ekki svona karlakvöld þar sem dansaður var listdans á súlum í kringum okkur, heldur alveg þveröfug stemning á við það. Menn smökkuðu á ótrúlega vel heppnaðri útgáfu af úrvalsbjór, einhverjir lásu upp úr bókum sínum og aðrir fluttu erindi. Þá datt einhverjum í hug að fá okkur Árna til að spila og syngja. Við höfum verið að vinna saman í ein fjögur ár, svo við áttum nóg af lögum til að hrista fram úr erminni. Úr varð 10 til 15 laga konsert," rifjar Gissur upp og Árni tekur við: „Þarna myndaðist þessi nánd sem verður bara á stofutónleikum. Það myndast allt önnur stemning á svona tónleikum en á venjulegum konsert þar sem tónlistarmennirnir eru uppi á sviði að spila fyrir 200 manns." Um val á tónleikastað segir Árni: „Þetta er eitt af fallegustu húsum bæjarins, byggt af Gunnari Guðjónssyni skipamiðlara og eitt af lykilhúsum Gunnlaugs Halldórssonar arkitekts. Eigendur þessa húss eru miklir listunnendur og eiga þennan forláta Steinway-konsertflygil. Ef maður vill húskonsert er það í þessu fallega húsi." Tónleikarnir hefjast klukkan 21, en húsið opnar klukkan 20.30. Í heild verða fjörutíu miðar í boði. Fyrir tónleikana geta gestir bragðað á léttum veitingum og dreypt á drykkjum. „Þegar nándin er svona mikil á milli flytjenda og áheyrenda verða sumir svolítið smeykir og feimnir. Þá er gott að vera með eitt til tvö freyðivínsglös í kroppnum og geta slakað á og notið sín," segir Gissur. Þeir Gissur og Árni Heiðar segjast vera vistvænt band. Það þýðir að þeir koma helst ekki fram með prentaða efnisskrá, heldur kynna dagskrána jafnóðum og hún er flutt og segja söguna að baki lögunum. Það fær þó að fylgja sögunni að á efnisskránni verða valdar perlur úr íslenskum, norrænum, mið- og suður-evrópskum ljóðasöng og sönglögum. Þeir lofa góðri stemningu sem mun kveikja hinar ýmsu tilfinningar í hjörtum hlustenda. „Þetta verður rosaleg rómantík, jafnvel erótík. Svo við tölum nú ekki um dramatík," segir Gissur að lokum, áður þeir félagar kveðja og snúa sér aftur að æfingunum. Hægt er að kaupa miða á midi.is hér. holmfridur@frettabladid.is
Mest lesið Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Lífið Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Lífið Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Lífið Seyfried syrgir Finn sinn Lífið Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Lífið Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Lífið Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Lífið „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Lífið Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Lífið Gosling verður Skrattakollur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Krakkatía vikunnar: Rottur, froða og þyrnihrós Einar Örn og Birna selja einbýlishúsið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Sjá meira