Fyrsta stórmótið þar sem íslensku strákarnir vinna verðandi meistara Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2012 10:00 Mynd/Valli
Íslenska handboltalandsliðið afrekaði það á Ólympíuleikum í London sem íslensku strákanir hafa aldrei náð áður á stórmóti en það er að vinna verðandi meistara. Þetta varð ljóst um leið og Frakkar og Svíar tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum í gær. Íslenska handboltalandsliðið vann leiki sína gegn Frakklandi og Svíþjóð í riðlakeppninni, fyrst 33-32 sigur á Svíum í þriðja leik sínum á leikunum og svo 30-29 sigur á Frökkum í næsta leik á eftir. Eina tap Frakka á leikunum kom á móti Íslandi en Svíar töpuðu bæði fyrir Íslandi og Frakklandi í riðlinum. Þetta er tólfta stórmótið sem íslenska landsliðið mætir verðandi meisturum en þar er verið að tala um Ólympíuleika, Heimsmeistarakeppni eða Evróumót. Bestum árangri gegn verðandi meisturum höfðu íslensku strákarnir náð á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 1984. Íslenska liðið mætti þá Júgóslavíu í fyrsta leik mótsins og gerði 22-22 jafntefli. Júgóslavar voru reyndar heppnir að sleppa með jafnteflið því íslenska liðið var fjórum mörkum yfir, 22-18, þegar fimm mínútur voru til leikslok. Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem íslenska landsliðið mætti verðandi meisturum á stórmóti en síðan þá höfðu íslensku strákarnir tapað tíu leikjum í röð á móti verðandi meisturum á HM, ÓL eða EM.Leikir Íslands á móti verðandi meisturum á stórmótum: ÓL 1984 - 22-22 jafntefli við Júgóslavíu ÓL 1988 - 19-32 tap fyrir Sovétríkjunum ÓL 1992 - 19-23 tap fyrir Samveldinu (undanúrslit) Hm 1993 - 19-27 tap fyrir Rússlandi EM 2000 - 23-31 tap fyrir Svíþjóð EM 2002 - 22-33 tap fyrir Svíþjóð (undanúrslit) ÓL 2004 - 30-34 tap fyrir Króatíu HM 2007 - 28-33 tap fyrir Þýskalandi Ól 2008 - 23-28 tap fyrir Frakklandi (úrslitaleikur) EM 2010 - 29-36 tap fyrir Frakklandi (undanúrslit) HM 2011 - 28-34 tap fyrir FrakklandiÓL 2012 - 33-32 sigur á Svíþjóð eða 30-29 sigur á Frakklandi
Mest lesið Birkir gæti hætt: Fékk spennandi starf en svo fór allt í skrúfuna Fótbolti Gæti orðið dýrastur í sögu KR Íslenski boltinn Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Handbolti Stjarnan staðfestir komu Caulker Íslenski boltinn Vann hundrað kílómetra hlaup og gaf brjóst á leiðinni Sport Rauð hitaviðvörun hjá stelpunum okkar í Serbíu Fótbolti Karólína Lea á bólakaf í kalda pottinum Fótbolti Ronaldo semur um að spila til 42 ára aldurs Fótbolti Tvö rauð spjöld og slagsmál er Inter komst áfram Fótbolti Kerkez orðinn leikmaður Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Enn á ný er Íslendingur á bak við sigur Magdeburg í Meistaradeildinni Gísli fékk „deja vu“: Árangur sem aðeins Íslendingar hafa náð Gísli Þorgeir bestur í annað sinn Gísli Þorgeir og Ómar Ingi Evrópumeistarar Nantes vann bronsið sem Barcelona nennti ekki Hetjuleg harka hjá Ómari og Gísla fleytti Magdeburg í úrslit Misstu sinn besta mann en fóru létt með undanúrslitaleikinn Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Landsmeistari í sextánda sinn á ferlinum Þrjár erlendar til nýliðanna á Akureyri „Stress og spenningur að flytja einn út og þurfa læra á uppþvottavél“ Rúnar látinn fara frá Leipzig Rut bætist í stóran hóp sem kvatt hefur landsliðið „Einvígi sem hefur verið magnað að taka þátt í“ Viðar Símonarson látinn Sjá meira