Sport

Ragna heppin með riðil í Lundúnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Vilhelm
Í dag var dregið í riðla fyrir keppni í badminton á Ólympíuleikunum í Lundúnum og lenti Ragna Ingólfsdóttir í ágætum riðli.

Ragna var dregin í F-riðil ásamt Jie Yao frá Hollandi og Akvile Stapusaityte frá Litháen.

Yao er 35 ára gömul, fædd í Kína og afar reynd. Hún situr í 20. sæti heimslistans en Ragna er í 81. sæti.

Stapusaityte, sem er 26 ára, er í 94. sæti heimslistans og því fyrir neðan Rögnu. Ragna ætti því að eiga góðan möguleika gegn henni en einn keppandi kemst áfram upp úr hverjum riðli og í 16-manna úrslit.

Ragna hefði getað endað í mun erfiðari riðli og má hún því vel við una. Ólympíuleikarnir verða settir á föstudaginn og keppni í badminton hefst á laugardaginn. Enn liggur þó ekki fyrir á hvaða dögum Ragna keppir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×