Sport

Ólafur Ragnar: Stærsti sigurinn hversu fjölmenn íslenska sveitin er

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var gestur á mótttökuhátíð sem haldin var fyrir íslensku Ólympíusveitina í Ólympíuþorpinu í gær.

Blaðamaður Vísis ræddi við hann um leikana og má sjá viðtalið í heild sinni hér fyrir ofan. Meðal annars segir hann að stærsti sigur íslensku sveitarinnar sé þegar unninn.

„Við erum með fjölmenna sveit og sú staðreynd að 300 þúsund manna þjóð takist það er mikil viðurkenning á því íþróttastarfi sem unnið er á Íslandi," sagði hann.

„Þótt að við vinnum ekki til verðlauna á hverjum Ólympíuleikum finnst mér í raun það vera mikill sigur fyrir okkur sem þjóð, þegar maður horfir á hvað aðrar þjóðir af svipaðri stærð eru að gera á þessum leikum - að sjá að okkar sveit er einna fjölmennust þjóða af hliðstæðri stærð."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×