Erlent

Obama söng með B.B. King

Bandaríkjaforseti steig á stokk í Hvíta Húsinu í gær og söng lagið Sweet home Chicago ásamt blúsgoðsögninni B.B. King.

Tónleikarnir fóru fram í Austur herbergi Hvíta Hússins voru nokkrir af frægustu tónlistarmönnum veraldar meðal gesta. Þar á meðal voru Mick Jagger og Buddy Guy. Sá síðarnefndi bað Bandaríkjaforseta um að syngja nokkrar línur.

Sönghæfileikar Obama eru víðfrægir en flutningur hans á laginu „Let's Stay Together" eftir Al Green vakti mikla í síðasta mánuði.

Hægt er að sjá flutning Obama hér fyrir ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×