Fordæma ruddaskap stjórnvalda varðandi framlög til heilbrigðismála 11. október 2011 21:37 Húsavík.
Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum; Framsýn- stéttarfélag, Starfsmannafélag Húsavíkur og Þingiðn- félag iðnaðarmanna funduðu í dag um boðaðar tillögur Fjárlaganefndar Alþingis um verulegar skerðingar á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Mikil reiði var meðal fundarmanna. Stéttarfélögin samþykktu að senda sameiginlega frá sér svohljóðandi ályktun um málið.Ályktun Um boðaðan niðurskurð á fjárveitingum til HÞEnn á ný sjá stjórnvöld ástæðu til að ráðast að grunnstoðum atvinnulífsins í Þingeyjarsýslum með ruddaskap.Boðaðar tillögur Fjárlaganefndar Alþingis gera ráð fyrir skerðingum á fjárframlögum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga um 71,6 m.kr. eða um 8,5% á árinu 2012.Þessi viðbótar skerðing er boðuð þrátt fyrir að mjög fast hafi verið sótt að rekstri þessarar mikilvægu stofnunar á undanförnum árum. Forsvarsmenn og starfsmenn hafa gert allt til að bregðast við lækkandi framlögum til rekstrar með hagræðingu og aðhaldi í rekstri. Að mati stéttarfélaganna verður ekki lengra komist í sparnaði nema það sé markmið núverandi stjórnvalda að ganga endanlega frá starfsemi Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga með lokun.Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum krefjast þess að stjórnvöld leggi tillögurnar þegar í stað til hliðar, þar sem þær ógna mjög alvarlega heilbrigðisöryggi og þar með búsetuskilyrðum í Þingeyjarsýslum.Að gefnu tilefni vilja stéttarfélögin minna á viljayfirlýsingu ríkistjórnar Íslands og sveitarfélaganna í Þingeyjarsýslum um uppbyggingu atvinnulífs í sýslunum, sem undirrituð var 25. maí 2011. Þar stendur orðrétt; „Aðilar eru sammála um mikilvægi þess að staðinn verði vörður um opinbera þjónustu á svæðinu, sem nauðsynleg er þegar til uppbyggingar kemur.“Stéttarfélögin krefja stjórnvöld um skýringar á orðalaginu í viljayfirlýsingunni í ljósi tillögu Fjárlaganefndar sem gengur út á að lama starfsemi Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Öflug heilbrigðisþjónusta á svæðinu er ein af megin forsendum þess að öflugt atvinnulíf þrífist í Þingeyjarsýslum og því kemur ekki til greina að veikja þjónustuna frá því sem nú er.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Innlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Fleiri fréttir Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Sjá meira