Tíska og hönnun

Samnýta fataskápa

Vera Einarsdóttir skrifar
Anika og Krista.
Anika og Krista. Fréttablaðið/Stefán
Vinkonurnar Anika Laufey Baldursdóttir og Krista Sigríður Hall ganga óhikað í fataskápana hjá hvor annarri og segja það hið besta kreppuráð. Þær hafa búið saman í miðbæ Reykjavíkur frá því í byrjun sumars og geta, með því að samnýta fataskápa, skartað „nýrri" flík á nánast hverjum degi.

„Við vinnum báðar í Spútnik og segjum reglulega: „Þurfum við ekki að fá okkur svona," segir Krista. „Við erum líka með mjög svipaðan stíl," segir Anika, „ erum báðar svolítið rokkaðar."

Vinkonurnar segja engin föt undanskilin. „Það er ekkert sem við viljum ekki lána og skiptumst meira að segja á sokkum," segir Krista.

Hún kvíðir því ekki að þurfa að skipta fataskápunum upp þegar leiðir skilja. „Við erum báðar svo fatasjúkar að við erum hvort eð er fljótar að endurnýja lagerinn. Hún segir þær oft velja samskonar föt á morgnana án þess að tala sig saman.

„Einn daginn erum við báðar í blómasamfestingum og annan í leðurbuxum með keðjur."

Anika segir samfestinga halda vinsældum sínum og finnst flott að nota skart, belti og háa hæla við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×