Hátíð í anda Hróarskeldu 22. júní 2011 06:00 Dagmar Erla Jónasdóttir, vaktstjóri á Dönsku kránni, er ein þeirra sem skipuleggur tónlistarhátíð í anda Hróarskeldu dagana 30. júní til 3. júlí. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „
Við verðum með fjögurra daga hátíð í anda Hróarskeldu, þar sem íslensk bönd koma og spila sína tónlist,“ segir Dagmar Erla Jónasdóttir, vaktstjóri á Dönsku kránni. Skemmtistaðirnir Danska kráin og Prikið hafa tekið höndum saman og halda eins konar tónlistarhátíð frá 30. júní til 3. júlí, en um sömu helgi er Hróarskelduhátíðin haldin í Danmörku. Fjölmargir íslenskir listamenn og hljómsveitir ætla að spila á hátíðinni hér heima en þar má nefna Vicky, Kiriyama Family, Árstíðir, Andvara, Foreign Monkeys, Ellen Kristjánsdóttur og Pétur Hallgrímsson, Emmsjé Gauta, Forgotten Lores, Blaz Roca, XXX Rottweiler og marga fleiri. Dagmar segist vona að hægt verði að hafa einhverja tónleika utandyra. „Við viljum reyna að vera úti á föstudag og laugardag, en staðirnir eru hlið við hlið svo það er auðvelt að flakka á milli,“ segir Dagmar, og bætir við að hugmyndin að hátíðinni sé einfaldlega að hafa gaman. „Það er frítt á alla tónleikana, en við verðum með armbönd til sölu sem gilda sem afsláttur af bjór en armbandið kostar 1000 krónur.“ Nánari upplýsingar um hljómsveitir og tímasetningar er að vænta á Facebook-síðu Dönsku kráarinnar og Priksins. - ka
Mest lesið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Tónlist Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Lífið Gamli er (ekki) alveg með'etta Gagnrýni Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Lífið Bieber gefur út óvænta plötu Lífið Upprunalega Birkin taskan seld á rúman milljarð Tíska og hönnun Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Lífið Borgin býður í tívolíveislu Tónlist Ragga Holm og Elma trúlofaðar Lífið Pfúff: Fjölskyldufrí og systkinin endalaust að rífast Áskorun Fleiri fréttir Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Fellsmúlinn prýðir Instagramfærslu Justin Bieber Áhrifarík ræða Begga Ólafs: „Hvað myndi Batman gera?“ Besta sætið ekki nógu spennandi fyrir Hugh Grant Einhver áhætta fylgi öllum atriðum í sirkusnum Stefán Karl hefði orðið fimmtugur í dag Markús nýr safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Sjá meira