Áttu notalegan dag á golfvellinum 4. maí 2011 08:00 Hluti af Vinum Sjonna áttu góða stund á golfvellinum Gravenberg í Dusseldorf í gær. Matthías Matthíasson reyndist hlutskarpastur og lék völlinn á 87 höggum. „
Þetta var bara geggjað, algjörlega frábær völlur og aðstæðurnar allar hinar bestu,“ segir Hreimur Örn Heimisson, einn af Vinum Sjonna. Eftir annasama tvo daga gafst félögunum loks að slaka aðeins á. Hreimur, Benedikt Brynleifsson, Matthías Matthíasson og Pálmi Sigurhjartarson skelltu sér í golf á golfvellinum Gravenberg og áttu þar notalega stund. Gunnar Ólason forfallaðist hins vegar vegna kvefs sem hann krækti sér í og litlum sögum fer af golfhæfileikum Vignis Snæs. Hreimur segir þetta hafa verið kærkomna hvíld en það var Matthías sem átti besta daginn, hann lék holurnar átján á 87 höggum sem þykir nokkuð gott miðað við að söngvarinn er með 16,7 í forgjöf. Hreimur hefur reyndar sínar útskýringar á góðu gengi Matthíasar en vill ekki gefa þær upp. Sjálfur er hann með tólf í forgjöf. „Það voru kannski helst sandglompurnar sem voru að þvælast eitthvað fyrir. Ég veit ekki hverjum datt í hug að setja þær þarna.“ Það eru ekki margir dagar sem gefast til að anda og Hreimur viðurkennir að fyrstu dagarnir hafi tekið eilítið á. „Blaðamennirnir hafa ekkert verið að hlífa okkur og hika ekkert við að spyrja okkur nærgöngula spurninga. Maður var því ansi búin á því á líkama og sál eftir mánudaginn,“ viðurkennir Hreimur. „En við náum að losa vel um þreytuna í gufunni, hér er farið einu sinni á dag í gufu.“ Í dag verður síðan farið yfir tæknilegar útfærslur lagsins og hvernig það á að líta út í sjónvarpi.-fgg
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira