Í hverju eru breytingar á stjórnarráði Íslands fólgnar? 14. september 2011 10:00 Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra flytur frumvarpið. Nokkrar samningaviðræður kostaði að fá frumvarpið úr nefnd, meðal annars var því bætt inn að ríkisstjórnarfundir skyldu hljóðritaðir. Minnihlutinn skilaði tveimur álitum. Mynd/GVA
Í hverju eru breytingar á stjórnarráði Íslands fólgnar? Frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um breytingar á stjórnarráði Íslands er til umræðu á Alþingi. Óhætt er að segja að á því séu skiptar skoðanir og þingmönnum liggur mikið á hjarta um málið, sem rætt hefur verið fram á nótt. Það er til annarrar umræðu og vonast ríkisstjórnin til þess að hægt sé að klára það á þingstubbnum sem nú stendur yfir. Stærsta breyting frumvarpsins varðar málefni ráðuneyta. Í núgildandi lögum eru þau talin upp með tæmandi hætti og til þess að sameina ráðuneyti, fækka eða fjölga, verður að fá samþykki Alþingis. Samkvæmt frumvarpinu verður breyting þar á; aðeins verður kveðið á um hámarksfjölda ráðuneyta, það er tíu, en það er síðan sett í hendur ríkisstjórn hverju sinni hver þau ráðuneyti eru. Þetta þýðir að forsætisráðherra getur kveðið á um sameiningu og breytingar á ráðuneytum án þess að fá til þess heimild Alþingis. Þetta hefur stjórnarandstaðan gagnrýnt og sagt færa vald frá Alþingi til forsætisráðherra. Það sé gegn niðurstöðu rannsóknarskýrslu Alþingis, sem kveðið hafi á um eflingu löggjafarvaldsins. Margir stjórnarandstæðingar hafa tekið til máls og ýjað að því að með þessu sé verið að þjappa valdi óeðlilega mikið saman á hendur þess sem gegni embætti forsætisráðherra hverju sinni. Stjórnarliðar hafa vísað til þess að þetta sé í samræmi við það sem gerist í hinum Norðurlandaríkjunum, að Finnlandi undanskildu. Þá sé forsætisráðherra ekki einráður í ríkisstjórnum og því sé ákvörðun um breytingar háð samþykki stjórnarflokka. Forseti Íslands þurfi eftir sem áður að samþykkja breytingarnar. Í nefndaráliti meirihluta allsherjarnefndar, sem nú fer fyrir málinu, segir að samkvæmt rannsóknarskýrslunni megi ætla að forsætisráðherra ætti að hafa víðtækara forystu- og stjórnunarhluterk í ríkisstjórn. Heimildir hans til að fela öðrum ráðherrum hluta af valdi sínu sé takmörkuð. Í frumvarpinu er einnig kveðið á um skipan ráðherranefnda, en þær eiga að nýtast við samhæfingu starfa á milli ráðuneyta. Einnig er kveðið á um stjórnunar- og eftirlitsskyldu ráðherra með lægra settum stjórnvöldum. Þá er kveðið á um hæfnisnefndir við skipan ráðuneytisstjórna og skrifstofustjóra í ráðuneytum. Heimildir ráðherra til að flytja starfsmenn á milli ráðuneyta vegna tímabundinna verkefna er einnig aukin. Líkt og áður segir lýtur gagnrýni stjórnarandstöðunnar fyrst og fremst að því að verið sé að flytja vald frá Alþingi til forsætisráðherra. Einnig hefur verið sett spurningarmerki við hámarksfjölda ráðuneyta hverju sinni. Stjórnarandstæðingar hafa ýjað að því að frumvarpið sé sett til höfuðs Jóni Bjarnasyni, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra. Færa eigi forsætisráðherra vald til breytinga á ráðuneytum svo hann geti búið til nýtt atvinnuvegaráðuneyti og lagt ráðuneyti Jóns niður. Sjálfur hefur Jón þvertekið fyrir þá skýringu, enda sé það ekki skynsamlegt að leggja landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið niður. Hann sé hins vegar á móti frumvarpinu þar sem það dragi úr valdi Alþingis. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Sjá meira