Íslenski boltinn

Pepsimörkin: Allt það besta úr 10. umferðinni

Öll mörkin úr 10. umferð Pepsideildar karla í fótbolta voru sýnd í þættinum Pepsimörkunum á Stöð 2 sport í gær. Þar fóru Hörður Magnússon, Reynir Leósson og Magnús Gylfason yfir gang mála í öllum leikjum umferðarinnar. Mörkin og öll helstu tilþrifin má sjá í myndbandinu.

Á visir.is er að finna umfjöllun, viðtöl og myndbönd frá leikjunum í 10. umferð.


Tengdar fréttir

Ásgeir: Við drulluðum á okkur

„Þetta er bara gjörsamlega til skammar og ég á ekki til orð yfir spilamennsku okkar í leiknum,“ sagði Ásgeir Börkur Ásgeirsson, leikmaður Fylkis, eftir tapið í kvöld.

Umfjöllun: Keflavík losaði sig úr fallbaráttunni

Keflavík vann mikilvægan 2-1 sigur á Víkingi á heimavelli sínu í kvöld. Fyrir leikinn munaði aðeins fjórum stigum á liðunum og því ljóst að með sigri hefðu Víkingar sótt Keflavík í fallbaráttuna en með sigrinum er Keflavík nú sjö stigum frá fallsæti þar sem Víkingar sitja að því er virðist sem fastast.

Þorvaldur: Úrslitin ekki að falla með okkur

Þorvaldur Örlygsson var ekki sáttur við jafntefli Framara gegn Grindavík í kvöld. Leikurinn var afar þýðingamikill enda liðin í botnsætunum, Grindvíkingar þó með 5 stigum meir en Framarar.

Andri: Vantar trú á verkefnið

Andri Marteinsson þjálfari Víkings var eðlilega ósáttur eftir tapið gegn Keflavík í kvöld og óskar eftir því að leikmenn sýnir mæti til leiks með meira sjálfstraust.

Heimir Guðjóns: Þeir voru betri á öllum sviðum

Heimir Guðjónsson þjálfari FH var ekki ánægður með 3–1 tap á Hásteinsvellinum. Hann vildi kenna viljaleysi sinna manna um hvernig fór en leikur FH-inga var einstaklega slappur í dag.

Haraldur: Það vantaði herslumuninn

„Ég er enginn hetja, það eru 11 menn inná vellinum í einu og við stóðum okkur allir vel í kvöld, en það vantaði herslumuninn,“ sagði Haraldur Björnsson, leikmaður Vals, eftir leikinn í kvöld.

Ragnar Hauksson gengur til liðs við Þór

Þórsarar hafa fengið liðstyrk fyrir átökin framundan í Pepsi-deild karla. Sóknarmaðurinn Ragnar Hauksson hefur gengið til liðs við félagið. Unnsteinn Jónsson formaður knattspyrnudeildar Þórs staðfesti þetta við Vísi fyrir stundu.

Valur getur endurheimt efsta sætið

Valsmenn geta endurheimt toppsætið í Pepsi-deild karla í knattspyrnu takist liðinu að leggja Stjörnumenn að velli á Hlíðarenda í kvöld. KR-ingar skutust upp fyrir Valsmenn með 3-0 sigri á Fylki í gærkvöld.

Grétar: Ætlum okkur langt í öllum keppnum

„Við skoruðum þrjú glæsileg mörk og ég er stoltur af liðinu að hafa spilað sig svona vel í gegnum gott lið Fylkis,“ sagði Grétar Sigfinnur Sigurðarson, leikmaður KR, eftir sigurinn í kvöld.

Rúnar: Lékum gríðarlega vel í fyrri hálfleiknum

"Menn léku gríðarlega vel í fyrri hálfleik og voru vel á tánum,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir stórsigur KR-inga á Fylki 3-0 þar sem öll mörk leiksins komu í fyrri hálfleiknum.

Myndaveisla af Kópavogsvelli

Breiðablik lagði Þór 4-1 í blíðskaparveðri í Kópavogi í gær. Sigurinn var gott veganesti fyrir Blika sem mæta Rosenborg í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu á miðvikudag. Pjetur Sigurðsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var á vellinum.

Umfjöllun: Valsmenn náðu ekki að endurheimta toppsætið

Valur og Stjarnan gerðu 1-1 jafntefli í 10.umferð Pepsi-deildar karla í kvöld á Hlíðarenda. Valsmenn áttu möguleika á því að komast á toppinn í deildinni en Stjörnumenn komu í veg fyrir það og jafntefli niðurstaðan. Stjarnan var mun sterkari aðilinn í síðari hálfleiknum og Valsmenn voru heppnir að fá stig úr leiknum, en markvörður þeirra Haraldur Björnsson átti frábæran leik og bjargaði þeim oft á tíðum.

Tryggvi nálgast met Inga Björns, 120 mörk

Eyjamaðurinn, Tryggvi Guðmundsson, nálgast markametið í efstu deild karla óðum, en Tryggvi hefur nú skorað 120 mörk í efstu deild. Ingi Björn Albertsson skoraði 126 mörk í efstu deild og því vantar Tryggva aðeins sjö mörk til að bæta metið.

Kristinn: Bannað að hlæja að óvitum

Kristinn Steindórsson skoraði eitt mark í 4-1 sigrinum á Þór í Kópavogi í dag. Hann hélt sér heitum í hálfleik meðan aðrir leikmenn liðsins fóru inn í klefa líkt og venjan er.

Jónas: Mikilvægt að ná í þetta stig

„Það var gott að ná í þetta stig þar sem Stjörnumenn voru bara mjög góðir,“ sagði Jónas Þór Næs, leikmaður Vals, eftir leikinn í kvöld.

Ólafur Örn: Mikilvægt fyrir sálartetrið

Ólafur Örn Bjarnason spilandi þjálfari Grindvíkinga var þokkalega sáttur að fá eitt stig gegn Fram í kvöld. Hann sagði mikilvægt að fá eitthvað út úr leiknum eftir útreiðina gegn FH.

Umfjöllun: Eyjamenn lögðu FH-inga í Eyjum

ÍBV vann 3-1 sigur á FH í leik liðanna á Hásteinsvelli í dag. Eyjamenn voru sterkari aðilinn og unnu sanngjarnan sigur. ÍBV er með sigrinum komið í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig en FH-ingar hafa 15 stig í því fjórða.

Pepsimörkin: Gaupahornið í heimsókn hjá Jóa Útherja

Guðjón Guðmundsson íþróttafréttamaður á Stöð 2 brá sér í heimsókn í íþróttaverslunina Jóa Útherja og ræddi þar við feðgana sem þar ráða ríkjum. Atriðið er úr þættinum Pepsimörkin sem var á dagskrá í gær eftir 10. umferð Íslandsmóts karla á Stöð 2 sport.

Tryggvi: Vissum alveg hvað við ætluðum að gera

Maður leiksins, Tryggvi Guðmundsson, var að vonum ánægður í leikslok. Tryggvi sem er fyrrum FH-ingur skoraði eitt og lagði upp annað í 3–1 sigri Eyjamanna og FH-ingunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×