Lífið

Áttu notalegan dag á golfvellinum

Hluti af Vinum Sjonna áttu góða stund á golfvellinum Gravenberg í Dusseldorf í gær. Matthías Matthíasson reyndist hlutskarpastur og lék völlinn á 87 höggum.
Hluti af Vinum Sjonna áttu góða stund á golfvellinum Gravenberg í Dusseldorf í gær. Matthías Matthíasson reyndist hlutskarpastur og lék völlinn á 87 höggum.
„Þetta var bara geggjað, algjörlega frábær völlur og aðstæðurnar allar hinar bestu,“ segir Hreimur Örn Heimisson, einn af Vinum Sjonna. Eftir annasama tvo daga gafst félögunum loks að slaka aðeins á. Hreimur, Benedikt Brynleifsson, Matthías Matthíasson og Pálmi Sigurhjartarson skelltu sér í golf á golfvellinum Gravenberg og áttu þar notalega stund. Gunnar Ólason forfallaðist hins vegar vegna kvefs sem hann krækti sér í og litlum sögum fer af golfhæfileikum Vignis Snæs.

Hreimur segir þetta hafa verið kærkomna hvíld en það var Matthías sem átti besta daginn, hann lék holurnar átján á 87 höggum sem þykir nokkuð gott miðað við að söngvarinn er með 16,7 í forgjöf. Hreimur hefur reyndar sínar útskýringar á góðu gengi Matthíasar en vill ekki gefa þær upp. Sjálfur er hann með tólf í forgjöf. „Það voru kannski helst sandglompurnar sem voru að þvælast eitthvað fyrir. Ég veit ekki hverjum datt í hug að setja þær þarna.“

Það eru ekki margir dagar sem gefast til að anda og Hreimur viðurkennir að fyrstu dagarnir hafi tekið eilítið á. „Blaðamennirnir hafa ekkert verið að hlífa okkur og hika ekkert við að spyrja okkur nærgöngula spurninga. Maður var því ansi búin á því á líkama og sál eftir mánudaginn,“ viðurkennir Hreimur. „En við náum að losa vel um þreytuna í gufunni, hér er farið einu sinni á dag í gufu.“ Í dag verður síðan farið yfir tæknilegar útfærslur lagsins og hvernig það á að líta út í sjónvarpi.-fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.