Vestur-Íslendingur slær í gegn með húlahoppi sínu 15. október 2011 06:30 Dansarinn Rebecca Holst hefur vakið athygli fyrir fimi sína með húlahringina en hún er stödd hér til að koma fram á Airwaves og hitta ættingja sína en Holst er af íslenskum ættum. Fréttablaðið/stefán
f „Ég elska að vera hérna og allir eru búnir að vera rosalega almennilegir við mig,“ segir kanadíski dansarinn Rebecca Holst sem er stödd hér á landi til að koma fram á Iceland Airwaves með hljómsveitinni Human Woman. Holst, sem er þekkt undir listamannsnafninu Becca Hoop, sérhæfir sig í að húla hringjum en hún er menntuð í nútímadansi og ballett. „Ég sneri mér að húlahringjum fyrir tíu árum og var meðal annars með námskeið og uppákomur í Kanada áður en ég flutti mig um set til Berlínar til að einbeita mér að ferli mínum. Maður þarf að æfa sig mikið til að verða góður í að húla en það er svo gaman að flestir setja það ekki fyrir sig,“ segir Holst, sem ferðast nú um allan heim til að halda námskeið og kenna dans með húlahringjum. Jón Atli Helgason, sem er í hljómsveitinni Human Woman ásamt Gísla Galdri Þorgeirssyni, sá Holst koma fram á næturklúbbi í Berlín og heillaðist af hæfileikum stúlkunnar og bað hana um að koma fram í tónlistarmyndbandi sveitarinnar. Í kjölfarið bað Jón Atli hana um að troða upp með sveitinni á Iceland Airwaves-hátíðinni en svo skemmtilega vill til að Holst á ættir að rekja til Íslands og var því fljót að samþykkja boðið. „Ég var ekki lengi að ákveða að koma með strákunum hingað þar sem ég á rætur að rekja til landsins og hef aldrei komið áður,“ segir Holst en langamma hennar og afi fluttu frá Íslandi til Kanada árið 1886. „Þannig að ég á fullt af ættingjum hérna sem ég ætla að nýta tækifærið og heimsækja,“ segir Holst, sem dvelur á Íslandi næstu tvær vikurnar og ætlar að ferðast um landið og skoða hvaðan forfeður hennar komu. „Ég kann ekki að segja nöfnin á stöðunum sem ég ætla að skoða en verð úti um allt land,“ segir Holst en þeir sem vilja sjá Beccu Hoop leika listir sínar er bent á að koma við í Bláa lóninu í dag um klukkan 13.00 en þar er hið svokallaða Blue Lagoon Chill í tengslum við Airwaves-hátíðina. alfrun@frettabladid.isf
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira