Ólafur hafði nær takmarkalaust vald yfir henni 9. október 2011 21:40 Guðrún Ebba Ólafsdóttir Mynd/Valgarður
Guðrún Ebba Ólafsdóttir, dóttir Ólafs Skúlasonar biskups kom fram í viðtali á RÚV í kvöld. Í viðtalinu sagði hún frá bókinni „Ekki líta undan" sem kemur út í kvöld. Hún fjallaði um kynferðisafbrot föður síns gegn sér, sagði áhrifum þeirra á líf sitt og baráttu við gleymdar minningar.Ofbeldið mótaði líf hennar Hún sagði frá því hve þungt ofbeldið hefur lagst á hana gegnum tíðina. Áður fyrr hafði hún lokað minningar um atburðina út úr vitund sinni. Þegar hún fór í áfengismeðferð fyrir um átta árum hafi minningarnar smátt og smátt komið aftur og hún hafi tekið að vinna í þeim. Hún sagði frá því hve ólýsanlega erfitt var fyrir hana að takast á við þessa atburði. Ólafur heitinn hafði nær ótakmarkað vald yfir henni og í huga hennar hafi eilíflega endurómað rödd hans, sem lofaði henni ungri því að ef þetta kæmist upp væri úti um hana. Það hafi verið mikið átak að yfirstíga þessar hótanir. Guðrún rifjaði upp hvernig atburðir barnæsku hennar höfðu áhrif á kjarna hennar og undirmeðvitund. Þeir eyðilagðu jafnvel fyrir henni ákveðnar bragðtegundir og lyktir. Til að mynda segist hún aldrei almennilega hafa getað drukkið appelsín sökum þess að bragðið tengist í huga hennar löngu liðnum brotum Ólafs.Ofbeldið endurtók sig Í viðtalinu sagði Guðrún frá því að fyrir aðeins tólf árum þegar hún fór með foreldrum sínum til útlanda hafi ofbeldið hafist á nýjaleik. Þá hafi Ólafur enn brotið gegn henni og henni hafi í kjölfarið liðið eins og smástúlku aftur. Þetta atvik segir hún hafa verið einna erfiðast að takast á við, enda hún orðin fullorðin kona en ekki bara hjálparlaust barn. Guðrún vill ekki ræða atburðinn í smáatriðum.Mótbyr Guðrún sagði frá því að þegar hún byrjaði í meðferð fyrir um átta árum hafi faðir hennar strax séð hvert stefndi og hafist handa við að gera hana tortryggilega. Hann hafi hringt í þá sem sáu um meðferðina og m.a. sagt þeim að Guðrún ætti við geðveilu að stríða. Þá hafi hann borið út þann orðróm að hún væri í slæmum félagskap. Allt vann þetta á sinn hátt gegn Guðrúnu, sem gegnum tíðina hefur mætt miklum mótbyr. Margir hafa neitað að trúa henni. Það var enda valdamikill og vel liðinn maður sem hún sakaði um einhver alvarlegustu lögbrot sem um getur.Vonar að eitthvað gott megi hljótast af málinu Í viðtali Ríkisútvarpsins við Guðrúnu sagðist hún hafa samþykkt gerð bókarinnar Ekki líta undan í einlægri von þess að eitthvað gott gæti hlotist af málinu öllu. Hún vilji sýna fólki að kynferðisofbeldi geti bitnað öllum, jafnvel duglegum, sjálfsöruggum konum sem sitja í borgarstjórn. Hún vilji einnig benda á hve falið kynferðisofbeldi geti verið, að vel metnir, hátt settir menn geti verið kynferðisafbrotamenn rétt eins og aðrir.
Mest lesið Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Erlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Erlent Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Erlent Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Innlent Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sæti Artúrs logar Erlent Fleiri fréttir Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Viðvaningsháttur Trump-liða, próflausir leigubílstjórar og vel heppnuð ganga Bláa lónið varar ferðamenn við óprúttnum leigubílstjórum Deilt um ESB og Sólveig Anna ræðir útlendingafrumvarp Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Sjá meira