Píanói stolið af tökustaðnum 21. september 2011 12:30 Píanói sem átti að nota í myndbandi hljómsveitarinnar Vigra var stolið af tökustaðnum. fréttablaðið/valli
Hljómsveitin Vigri varð fyrir þeirri makalausu reynslu að píanói var stolið frá sveitinni við tökur á nýju myndbandi. Um eitt hundrað aukaleikarar tóku þátt í tökunum. Píanói var stolið frá hljómsveitinni Vigra við tökur á myndbandi hennar við lagið Skikkan Skaparans. Tökurnar fóru fram við Slippinn í Reykjavíkurhöfn og átti píanóið að vera í sjónum í myndbandinu. „Við komum þarna með píanóið í sendiferðabíl og skutumst svo frá í eina klukkustund. Síðan var það bara horfið,“ segir Bjarki Pjetursson, liðsmaður Vigra. „Við fórum í Sorpu og tékkuðum hvort einhver hefði hent því en þar kannaðist enginn við píanóið. Við löbbuðum líka út með sjónum til að athuga hvort sjórinn hefði tekið það en svo var ekki. Þetta var mjög furðulegt,“ segir Bjarki og undrast að einhver hafi gerst svo kræfur að stela níðþungu píanóinu. „Það er eins og það hafi gufað upp. Þetta var alveg ótrúlegt.“ Myndbandið var tekið í einni töku í leikstjórn Ragnars Snorrasonar og fjallar um jarðarför. Það verður frumsýnt á tónleikum Vigra í Fríkirkjunni á fimmtudagskvöld þar sem útgáfu plötunnar Pink Boats, sem kom út í júní, verður fagnað. Hátt í eitt hundrað aukaleikarar mættu í Slippinn til að leggja hljómsveitinni lið við gerð myndbandsins, þar á meðal knattspyrnukapparnir Guðmundur Reynir Gunnarsson og Skúli Jón Friðgeirsson úr KR sem eru vinir þeirra Vigra-manna. Hljómsveitin hefur áður sent frá sér myndband við lagið Sleep, einnig í leikstjórn Ragnars. Það vakti mikla athygli og hlaut tilnefningar til verðlauna á erlendum kvikmyndahátíðum í vor. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira