Noregstónleikum Sin Fang aflýst 28. júlí 2011 14:00 Sindri Már og félagar í Sin Fang spila ekki á norskri tónlistarhátíð vegna voðaverkanna þar í landi. Mynd/Stefán „
Þegar þetta gerðist bjóst maður ekkert við því að fólk væri í einhverri partístemningu,“ segir Sindri Már Sigfússon, forsprakki Sing Fang. Hljómsveitin átti að spila á tónlistarhátíðinni Storåsfestivalen í Noregi næsta laugardag en hátíðinni var aflýst vegna voðaverkanna þar í landi. Að sögn Sindra Más var mikil tilhlökkun hjá meðlimum Sin Fang að spila á hátíðinni áður en atburðirnir áttu sér stað. Á meðal annarra banda sem áttu að spila var The Go! Team frá Englandi. Sin Fang hefur þó ekki gefið Noreg upp á bátinn því sveitin spilar þar í september. Tónleikarnir verða hluti af stórri tónleikaferð um Evrópu sem hefst í lok ágúst. Í stað þess að spila á Storåsfestivalen spilar Sin Fang á Innipúkanum um verslunarmannahelgina. Þar hefur Sindri Már oft spilað áður, meðal annars á fyrstu hátíðinni fyrir níu árum með hljómsveitinni Lovers Without Lovers. „Við fengum dóm eftir þá tónleika að við hlytum að vera skyldir einhverjum sem skipulagði hátíðina. Þetta herti mann bara,“ segir Sindri hress. Hann hefur í sumar verið að taka upp nýja Sin Fang-plötu sem kemur út á næsta ári. Í fyrsta sinn var upptökustjóri honum til aðstoðar og kom það í hlut Alex Somers, kærasta Jónsa í Sigur Rós. „Hann er mjög klár. Það er gaman að þurfa ekki að taka upp og spila líka. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt.“ - fb
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Sjá meira