Hljóðrituðu bestu lögin aftur 14. nóvember 2011 12:00 Aðdáendur Papa geta farið að undirbúa sig undir það að Matti, oftast kenndur við Papa, verði bara Matti eða Matti Matt. Fréttablaðið/Valli „
Við ákváðum að fara þessa leið til að samræma hljóminn, Paparnir hljóma allt öðruvísi í dag en þeir gerðu fyrir nokkrum árum,“ segir Matthías Matthíasson, oftast kallaður Matti eða Matti í Pöpunum. Hljómsveitin Papar gefur út svokallað „best off“-safn um mánaðarmótin sem telst vart til sérstakra tíðinda nema ef ekki væri fyrir þá staðreynd að hljómsveitin fór í hljóðver og tók bestu lögin upp á ný. „Við hlustuðum á lögin og áttuðum okkur á því að það væri svolítið erfitt að gefa fólki heildarmynd af Pöpunum þannig að við gerðum þetta bara á þennan hátt og fáum fullt af góðum gestum með okkur.“ Fyrir tveimur árum spratt upp sérkennileg deila þegar tveir af stofnmeðlimum Papa töldu sig geta endurstofnað hljómsveitina og hófu að spila undir merkjum sveitarinnar. Núverandi meðlimir hljómsveitarinnar sættu sig ekki við þetta og fengu lögbann á nafnið og var endurvakta sveitin að lokum skírð Hrafnar. Matti þvertekur fyrir að sú deila snerti eitthvað þá ákvörðun að þeir fóru í hljóðver á ný. „Það hefur aldrei verið neitt vandamál með útgefna efnið okkar, það hefur verið bara verið í höndunum á útgáfufyrirtækjunum.“ Það telst hins vegar til tíðinda að Bergsveinn Árelíusson, sem eitt sinn var söngvari Sóldaggar, syngur meir en helming laganna á safndisknum, hann og Matti skipta því með sér verkum. Matti viðurkennir að breytingar séu í nánd. „Við erum kannski að undirbúa fólk undir það að ég verði minna með Pöpunum og að maður verði meira bara Matti Matt en Matti í Pöpunum. Það er farið að bitna á hljómsveitinni hvað ég hef mikið að gera á öðrum sviðum og Beggi þekkir þetta eins og lófann á sér.“ -fgg
Mest lesið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Fleiri fréttir Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Sjá meira