Afskriftir hjá Íbúðalánasjóði hafnar Símon Birgisson skrifar 13. apríl 2011 18:40
Um fimmtán hundruð manns hafa sótt um að nýta sér 110 prósent leiðina svokölluðu hjá Íbúðalánasjóði. Alþingi samþykkti nýverið lögin og ganga nú fasteignasalar um borgina og verðmeta húsnæði þeirra sem skulda meira en þeir eiga. Lögin um hundrað og tíu prósent leiðina voru samþykkt á Alþingi í lok síðasta mánaðar. Íbúðalánasjóður gerir ráð fyrir að afskriftir á lánum einstaklinga vegna úrræðisins nemi um 20 milljörðum í ársreikningum ársins 2010 en heildarafskriftarþörf sjóðsins verði samtals 36,6 milljarðar á árinu. Að sögn starfsmanna Íbúðalánasjóðs er mikið að gera þessa dagana. Búið er að afgreiða fyrstu málin og búist er við að hafist verði handa við að afskrifa lán einstaklinga næstu vikur. Ferlið gengur þannig fyrir sig að fólk skráir sig á netinu. Skila þarf staðfestingu á skattaframtali og upplýsingum um lánin og til að komast á umsóknarsíðuna sjálfa þarf veflykil frá ríkisskattstjóra eða rafræn skilríki sem um 80 þúsund Íslendingar eru komnir með. Samkvæmt lögunum hafa einstaklingar rétt á þessu úrræði ef uppreiknuð staða veðkrafna, og er þá miðað við dagsetninguna 1. janúar 2011, sé umfram 110% af verðmæti fasteignarinnar. Heimilt er að afskrifa 4 milljónir hjá einstaklingum og allt upp í 7 milljónir hjá hjónum. Greiðslubyrði lántakanda vegna kröfunnar verður aldrei lægri en nemur 18% af samanlögðum tekjum. Þessi heildarfjárhæð getur þó ekki orðið meiri en 15 milljónir hjá einstaklingum og 30 milljónir hjá hjónum. Þegar umsókn þín um 110% leiðina er samþykkt sendir Íbúðalánasjóður löggildan fasteignasala á heimili þitt sem verðmetur eignina. Miðað við þann fjölda sem sótt hefur um afskriftir er ljóst að fasteignasalar hafa nú nóg að gera.
Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Heyrði skothvellina á Bondi strönd Vinstri beygjan bönnuð Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Sjá meira