Fáðu nýtt lag Ragnheiðar frítt - Tónleikar fyrir útvalda í kvöld 31. mars 2011 16:28 Nýja lagið með Ragnheiði lofar góðu fyrir plötuna.
Söngkonan Ragnheiður Gröndal undirbýr um þessar mundir útgáfu næstu breiðskífu sinnar og heldur af því tilefni tónleika í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í kvöld. Aðdáendur söngkonunnar geta náð sér í fyrstu smáskífuna af plötunni á Tónlist.is en hún fæst þar ókeypis í takmarkaðan tíma. Það er langt síðan Ragnheiður hefur haldið tónleika hér heima en hún hefur undanfarin misseri verið búsett í Berlín í Þýskalandi. Nú er hún aftur á móti flutt heim og verður meira áberandi á næstunni. Á morgun eru til að mynda tónleikar með henni í Þorlákshöfn. Ragnheiður vinnur um þessar mundir að nýrri breiðskífu sem áætlað er að komi út í maí. Verða tónleikarnir notaðir til þess að leyfa fólki að heyra nýtt efni og sjá viðbrögðin við því. Ragnheiður syngur og spilar á píanó, Guðmundur Pétursson á gítar, Róbert Þórhallsson á bassa og Birgir Baldursson á trommur. Nýja smáskífan sem er ókeypis á Tónlist.is ber heitið Wise Man Song en í því lagi nýtur Ragnheiður aðstoðar söngkvennanna Ragnhildar Gísladóttur og Sigríðar Thorlacius. Aðeins 100 sæti eru í boði á tónleikana í kvöld svo hljómburður og töfrandi andrúmsloft Þjóðmenningarhússins njóti sín til fulls. Miðaverð er 2500 krónur en miðasala er bæði á midi.is og við innganginn. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 en húsið opnar hálftíma fyrr.
Mest lesið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira