Guðný dæmd í fjögurra leikja bann fyrir að skalla mótherja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. ágúst 2011 18:45 Guðný Guðleif Einarsdóttir í leik með KR. Mynd/Heimasíða KR
Guðný Guðleif Einarsdóttir, leikmaður FH í 1. deild kvenna í fótbolta, var í dag dæmd í fjögurra leikja bann af Aganefnd Knattspyrnusambands Íslands. Guðný missti stjórn á sér í leik á móti sínum gömlu félögum í Sindra um síðustu helgi og skallaði mótherja. „Ljótt atvik setti svartan blett á annars flotta frammistöðu FH en eftir 15 mínútna leik í síðari hálfleik var Guðnýju Guðleifu Einarsdóttur, leikmanni FH, vísað af velli fyrir að skalla leikmann Sindra í andlitið.. Virkilega ljótt brot og hlúa þurfti að leikmanni Sindra utan vallar í kjölfarið. Leikmenn Sindra voru afar ósáttir við Guðnýju þarna en það sem þeim sveið hvað mest er að Guðný er frá Höfn og lék með Sindraliðinu í fyrra," segir í frétt um leikinn inn á vefsíðunni fótbolti.net. FH-liðið var 3-0 yfir í leiknum þegar atvikið varð en liðið vann leikinn á endanum 8-0 þrátt fyrir að leika manni færri síðasta hálftímann. Guðný sem er 27 ára gömul lék fjóra leiki með Sindra á síðasta tímabili en hún hefur einnig leikið með KR undanfarin tímabil.
Íslenski boltinn Mest lesið Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Enski boltinn Hafa náð í leikmenn frá fjórum bestu liðunum Körfubolti Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Enski boltinn Uppgjörið: Valur - Zrinjski Mostar 1-0 | Sterkur Evrópusigur hjá Val Fótbolti Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Kvöld eins og þetta græðir ekki sárin en lætur þó hlutina vera miklu betri“ Fótbolti Haaland dýrastur í sögu Fantasy Enski boltinn KR sækir sænskan landsliðsmann Körfubolti Fleiri fréttir Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjáðu draumainnkomu Söntu í íslenska boltann „Þetta lítur bara illa út“ Bossabissnessinn blómstrar samhliða boltanum Bjarni Guðjóns viðurkenndi að dæma átti víti á son hans Sjáðu langskotaveislu Keflvíkinga í stórsigri á Skagamönnum Uppgjörið: FH – Breiðablik 0-0 | Markalaust þrátt fyrir fjölda færa og umdeilanleg atvik Uppgjör: Keflavík – ÍA | Slátrun á Suðurnesjunum Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Þróttur 4-2 | Ótrúleg endurkoma og nýliðaþrenna Sjáðu Fram og Þór/KA hrista vel upp í fallbaráttunni í Bestu kvenna Beið spenntur eftir því að Amin færi út Sjáðu Stjörnusnakksmáltíð KR-inga og markajafntefli í Eyjum „Vorum bara litlar í okkur og vorum bara hérna að grenja“ „Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ Sjá meira