Innlent

Telur dómstóla vanhæfa í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu

Dómstólar eru vanhæfir til að fjalla aftur um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Óháð rannsókarnefnd þurfi að rannsaka málið í heild sinni. Þetta segir blaðamaður sem rannsakaði Guðmundar- og Geirfinnsmálið og kallar það samvisku þjóðarinnar.

Sigursteinn Másson skrifaði og framleiddi þáttinn Aðför að lögum árið 1996 ásamt Einari Magnúsi Magnússyni. Þátturinn sem fjallaði um Guðmundar- og Geirfinnsmálið vakti mikla athygli en nú, um 15 árum síðan, er staðan í málinu, sem Sigursteinn kallar samvisku þjóðarinnar, í raun óbreytt.

„Ég held að þetta mál risti mjög djúpt vegna þess að þjóðin skilur að málið er meingallað. Það vantar auðvitað í þetta mál lík þeirra sem áttu að hafa verið myrtir, það vantar öll sönnunargögn og vitnisburðir sem voru til grundvallar sakfellingu voru allir dregnir til baka," segir Sigursteinn.

Þjóðin skilji því að allur málatilbúnaðurinn sé gallaður og rangir dómar hafi fallið. Mikilvægt sé að stofna rannsóknarnefnd sem fari yfir málið í heild sinni. Krafan um slíka rannsókn hefur verið hávær eftir fráfall Sævars Ciesielski í síðustu viku.

Spurður hvort það sé of seint svarar Sigursteinn: „Ég held það sé í það síðasta. Sævar er látinn. En gagnvart honum og öðrum sakborningum, þeim sem lentu í þessu máli, þá skuldum við öll þessu fólki það að þessi mál verði löguð eftir því sem hægt er."

Farið verði í saumana á þeim dómum sem féllu, málarekstrinum sjálfum og hvernig farið var með sakborningana í gæsluvarðhaldi. „Þetta verður allt saman að skoða núna og við skuldum þessu fólki að gera það sómasamlega og það verður ekki öðruvísi gert en að fara framhjá dómsstólunum af því að þeir hafa sýnt það á þessum árum og áratugum að þeim er ekki treystandi til að afgreiða þetta mál."




Tengdar fréttir

Ráðherra vill ekkert segja um mögulega endurupptöku

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, vill ekki svara því til hvort hann hyggist beita sér fyrir því að Guðmundar og Geirfinnsmálin verði rannsökuð að nýju. Einn sakborninganna, Sævar Cieselski, þurfti að þola harðræði og pyntingar þegar honum var haldið í einangrunarvist. Sævar lést í vikunni en hann barðist alla tíð fyrir réttlæti í málinu.

Útilegumaður deyr

Andlát Sævars Ciesielski táknar ekki endalok Geirfinns- og Guðmundarmála. Málinu lauk ekki þegar Sævar og nokkur önnur ungmenni játuðu á sig sakir – alls konar sakir, allar þær sakir sem þeim var gert að játa og meira til svo að úr varð ein allsherjar játningaflækja sem þýskur lögreglumaður á eftirlaunum var látinn greiða úr. Málinu lauk ekki heldur þegar þau voru dæmd og því lauk ekki þegar þau voru búin að afplána dóminn: þessu máli lýkur ekki fyrr en það verður tekið upp á ný af réttbærum yfirvöldum og það leitt til lykta á þann hátt að íslenskt samfélag geti horfst í augu við sjálft sig og sagt, áminnt um sannsögli, að þessir tilteknu þegnar þess hafi loksins fengið réttláta málsmeðferð.

Björgvin vill taka upp Guðmundar- og Geirfinnsmálin að nýju

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, skorar á Ögmund Jónasson innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að Guðmundar- og Geirfinnsmálin svokölluðu verði tekin upp að nýju. Eftir að Guðmundur Einarsson og Geirfinnur Einarsson hurfu sporlaust um miðjan áttunda áratuginn voru fjögur ungmenni dæmd í fangelsi. Málsmeðferðinni var allan tímann verulega ábótavant og einn hinna dæmdu, Sævar Ciesielski, krafðist ítrekað endurupptöku málsins. Sævar lést í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn.

Erla Bolladóttir: Mikil sorg að Sævar sé farinn

Erla Bolladóttir, fyrrverandi unnusta Sævars Ciesielskis, segir það vera mikla sorg að Sævar skuli vera farinn. Hann lést þegar að hann datt í Kaupmannahöfn aðfaranótt miðvikudags og fékk höfuðhögg.

Sævar Ciesielski er látinn

Sævar Ciesielski lést af slysförum í Kaupmannahöfn aðfaranótt miðvikudags. Hann hafði verið búsettur þar um skeið. Sævar var einn sakborninganna í Geirfinnsmálinu og hlaut þyngsta dóminn, ævilangt fangelsi í héraðsdómi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×