Telur dómstóla vanhæfa í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu 19. júlí 2011 19:45
Dómstólar eru vanhæfir til að fjalla aftur um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Óháð rannsókarnefnd þurfi að rannsaka málið í heild sinni. Þetta segir blaðamaður sem rannsakaði Guðmundar- og Geirfinnsmálið og kallar það samvisku þjóðarinnar. Sigursteinn Másson skrifaði og framleiddi þáttinn Aðför að lögum árið 1996 ásamt Einari Magnúsi Magnússyni. Þátturinn sem fjallaði um Guðmundar- og Geirfinnsmálið vakti mikla athygli en nú, um 15 árum síðan, er staðan í málinu, sem Sigursteinn kallar samvisku þjóðarinnar, í raun óbreytt. „Ég held að þetta mál risti mjög djúpt vegna þess að þjóðin skilur að málið er meingallað. Það vantar auðvitað í þetta mál lík þeirra sem áttu að hafa verið myrtir, það vantar öll sönnunargögn og vitnisburðir sem voru til grundvallar sakfellingu voru allir dregnir til baka," segir Sigursteinn. Þjóðin skilji því að allur málatilbúnaðurinn sé gallaður og rangir dómar hafi fallið. Mikilvægt sé að stofna rannsóknarnefnd sem fari yfir málið í heild sinni. Krafan um slíka rannsókn hefur verið hávær eftir fráfall Sævars Ciesielski í síðustu viku. Spurður hvort það sé of seint svarar Sigursteinn: „Ég held það sé í það síðasta. Sævar er látinn. En gagnvart honum og öðrum sakborningum, þeim sem lentu í þessu máli, þá skuldum við öll þessu fólki það að þessi mál verði löguð eftir því sem hægt er." Farið verði í saumana á þeim dómum sem féllu, málarekstrinum sjálfum og hvernig farið var með sakborningana í gæsluvarðhaldi. „Þetta verður allt saman að skoða núna og við skuldum þessu fólki að gera það sómasamlega og það verður ekki öðruvísi gert en að fara framhjá dómsstólunum af því að þeir hafa sýnt það á þessum árum og áratugum að þeim er ekki treystandi til að afgreiða þetta mál."
Tengdar fréttir Ráðherra vill ekkert segja um mögulega endurupptöku Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, vill ekki svara því til hvort hann hyggist beita sér fyrir því að Guðmundar og Geirfinnsmálin verði rannsökuð að nýju. Einn sakborninganna, Sævar Cieselski, þurfti að þola harðræði og pyntingar þegar honum var haldið í einangrunarvist. Sævar lést í vikunni en hann barðist alla tíð fyrir réttlæti í málinu. 17. júlí 2011 12:21 Útilegumaður deyr Andlát Sævars Ciesielski táknar ekki endalok Geirfinns- og Guðmundarmála. Málinu lauk ekki þegar Sævar og nokkur önnur ungmenni játuðu á sig sakir – alls konar sakir, allar þær sakir sem þeim var gert að játa og meira til svo að úr varð ein allsherjar játningaflækja sem þýskur lögreglumaður á eftirlaunum var látinn greiða úr. Málinu lauk ekki heldur þegar þau voru dæmd og því lauk ekki þegar þau voru búin að afplána dóminn: þessu máli lýkur ekki fyrr en það verður tekið upp á ný af réttbærum yfirvöldum og það leitt til lykta á þann hátt að íslenskt samfélag geti horfst í augu við sjálft sig og sagt, áminnt um sannsögli, að þessir tilteknu þegnar þess hafi loksins fengið réttláta málsmeðferð. 18. júlí 2011 11:00 Erla Bolladóttir vill óháða rannsóknarnefnd Erla Bolladóttir, einn sakborninga í Guðmundar og Geirfinnsmálinu, vill að óháð rannsóknarnefnd rannsaki málið. Fyrr verði réttlætinu ekki fullnægt. 18. júlí 2011 19:45 Björgvin vill taka upp Guðmundar- og Geirfinnsmálin að nýju Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, skorar á Ögmund Jónasson innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að Guðmundar- og Geirfinnsmálin svokölluðu verði tekin upp að nýju. Eftir að Guðmundur Einarsson og Geirfinnur Einarsson hurfu sporlaust um miðjan áttunda áratuginn voru fjögur ungmenni dæmd í fangelsi. Málsmeðferðinni var allan tímann verulega ábótavant og einn hinna dæmdu, Sævar Ciesielski, krafðist ítrekað endurupptöku málsins. Sævar lést í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn. 16. júlí 2011 13:42 Erla Bolladóttir: Mikil sorg að Sævar sé farinn Erla Bolladóttir, fyrrverandi unnusta Sævars Ciesielskis, segir það vera mikla sorg að Sævar skuli vera farinn. Hann lést þegar að hann datt í Kaupmannahöfn aðfaranótt miðvikudags og fékk höfuðhögg. 14. júlí 2011 16:02 Sævar Ciesielski er látinn Sævar Ciesielski lést af slysförum í Kaupmannahöfn aðfaranótt miðvikudags. Hann hafði verið búsettur þar um skeið. Sævar var einn sakborninganna í Geirfinnsmálinu og hlaut þyngsta dóminn, ævilangt fangelsi í héraðsdómi. 14. júlí 2011 07:00 Mest lesið Bensínbrúsar inni í íbúðinni Innlent Fólk í fjarvinnu finni fyrir minni streitu Innlent Fólk látið vinna of hratt og fái ekki greitt fyrir alla vinnuna Innlent Sást ekki til sólar fyrir mýi Innlent Fólk veltir fyrir sér hvort Áslaug Arna hafi verið slompuð í ræðustól Innlent Áfengi og íþróttaviðburðir geti átt samleið sé farið að lögum Innlent Fjögurra ára gömul hola heyrir brátt sögunni til Innlent Maðurinn kominn í leitirnar Innlent Lagði Livio sem þarf að punga út 25 milljónum króna Innlent Hafi verulega þýðingu hvort Dagbjört hafi haft ásetning til morðs Innlent Fleiri fréttir Fólk í fjarvinnu finni fyrir minni streitu Fólk látið vinna of hratt og fái ekki greitt fyrir alla vinnuna Sást ekki til sólar fyrir mýi Áfengi og íþróttaviðburðir geti átt samleið sé farið að lögum Bensínbrúsar inni í íbúðinni Fjögurra ára gömul hola heyrir brátt sögunni til Möguleg íkveikja til rannsóknar, snuðað á ræstingarfólki og flugnager Hafi verulega þýðingu hvort Dagbjört hafi haft ásetning til morðs „Verkefnið bara heltekur okkur“ Annar látinn eftir eldsvoðann á Hjarðarhaga Lagði Livio sem þarf að punga út 25 milljónum króna Stefna að opnun nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri árið 2028 Framkvæmdir í tómri Árbæjarlaug ganga vel Fólk veltir fyrir sér hvort Áslaug Arna hafi verið slompuð í ræðustól Ný samræmd próf taki ekki yfir skólastarfið eins og þau gömlu Upptök eldsvoðans í rannsókn og nemar við Harvard áhyggjufullir Skoða hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað Bein útsending: Að eldast á Íslandi Lítil hreyfing á fylgi stjórnmálaflokkanna Maðurinn kominn í leitirnar Verði bylting að geta fylgst með námsframvindu barna í rauntíma NEL tekur fyrir mál fjölskyldu Sigurðar Kristófers í júní Fólki sé vel treystandi til að fá sér bjór á íþróttaviðburðum Græddu á hjólinu í fyrra og vilja endurtaka leikinn Svona verður Sæbraut í stokki Súkkulaði sviðakjammar rjúka út á Selfossi Fær þyngri dóm fyrir að nauðga konu, taka það upp og senda henni Margt sem hægt sé að læra af Svíum í baráttunni gegn mansali Mál hættulegra fyrrverandi fanga endi alltaf eins Þjónusta hjálparsímans tryggð Sjá meira
Ráðherra vill ekkert segja um mögulega endurupptöku Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, vill ekki svara því til hvort hann hyggist beita sér fyrir því að Guðmundar og Geirfinnsmálin verði rannsökuð að nýju. Einn sakborninganna, Sævar Cieselski, þurfti að þola harðræði og pyntingar þegar honum var haldið í einangrunarvist. Sævar lést í vikunni en hann barðist alla tíð fyrir réttlæti í málinu. 17. júlí 2011 12:21
Útilegumaður deyr Andlát Sævars Ciesielski táknar ekki endalok Geirfinns- og Guðmundarmála. Málinu lauk ekki þegar Sævar og nokkur önnur ungmenni játuðu á sig sakir – alls konar sakir, allar þær sakir sem þeim var gert að játa og meira til svo að úr varð ein allsherjar játningaflækja sem þýskur lögreglumaður á eftirlaunum var látinn greiða úr. Málinu lauk ekki heldur þegar þau voru dæmd og því lauk ekki þegar þau voru búin að afplána dóminn: þessu máli lýkur ekki fyrr en það verður tekið upp á ný af réttbærum yfirvöldum og það leitt til lykta á þann hátt að íslenskt samfélag geti horfst í augu við sjálft sig og sagt, áminnt um sannsögli, að þessir tilteknu þegnar þess hafi loksins fengið réttláta málsmeðferð. 18. júlí 2011 11:00
Erla Bolladóttir vill óháða rannsóknarnefnd Erla Bolladóttir, einn sakborninga í Guðmundar og Geirfinnsmálinu, vill að óháð rannsóknarnefnd rannsaki málið. Fyrr verði réttlætinu ekki fullnægt. 18. júlí 2011 19:45
Björgvin vill taka upp Guðmundar- og Geirfinnsmálin að nýju Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, skorar á Ögmund Jónasson innanríkisráðherra að beita sér fyrir því að Guðmundar- og Geirfinnsmálin svokölluðu verði tekin upp að nýju. Eftir að Guðmundur Einarsson og Geirfinnur Einarsson hurfu sporlaust um miðjan áttunda áratuginn voru fjögur ungmenni dæmd í fangelsi. Málsmeðferðinni var allan tímann verulega ábótavant og einn hinna dæmdu, Sævar Ciesielski, krafðist ítrekað endurupptöku málsins. Sævar lést í Kaupmannahöfn á miðvikudaginn. 16. júlí 2011 13:42
Erla Bolladóttir: Mikil sorg að Sævar sé farinn Erla Bolladóttir, fyrrverandi unnusta Sævars Ciesielskis, segir það vera mikla sorg að Sævar skuli vera farinn. Hann lést þegar að hann datt í Kaupmannahöfn aðfaranótt miðvikudags og fékk höfuðhögg. 14. júlí 2011 16:02
Sævar Ciesielski er látinn Sævar Ciesielski lést af slysförum í Kaupmannahöfn aðfaranótt miðvikudags. Hann hafði verið búsettur þar um skeið. Sævar var einn sakborninganna í Geirfinnsmálinu og hlaut þyngsta dóminn, ævilangt fangelsi í héraðsdómi. 14. júlí 2011 07:00