Innlent

Öflugasta sprengigos í Grímsvötnum í 100 ár

Gosið í Grímsvötnum er öflugasta sprengigos sem orðið hefur í eldstöðinni í 100 ár. Vísbendingar eru um að nokkuð hafi dregið úr krafti gossins á síðustu klukkustundum. Stórkostleg sjón, segir fjallaleiðsögumaður.

Fljótlega kom í ljós að þetta yrði ekkert minniháttar gos. Öskuhlaðinn gosmökkurinn steig hratt upp og náði upp í 17 kílómetra hæð strax í gosbyrjun eins og sást á þessum myndum sem myndatökumaður okkar tók úr flugi yfir eldstöðina á tíunda tímanum í gærkvöldi.

Strax á fyrstu klukkustundum gossins var mökkurinn komin í 19 til 20 kílómetra hæð og aska fór fljótlega að falla víða á Suðurlandi, í byggð. Í gærkvöldi var mesta öskufallið frá Kirkjubæjarklaustri austur fyrir Freysnes í Öræfum.

Ekkert eldfjall á Íslandi gýs jafn oft og Grímsvötn en í eldstöðinni eru þrjár samliggjandi öskjur. Grímsvötnin sjálf eru í yngstu öskjunni.

Jón Gauti Jónsson, fjallaleiðsögumaður hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum, var staddur á Öræfajökli þegar gosið hófst. Stórkostleg sjón, segir Jón Gauti sem sá mökkinn rísa hratt upp í himinn.


Tengdar fréttir

Caribou tónleikum aflýst vegna gossins

Hljómleikum Caribou sem áttu að fara fram á Nasa í kvöld hefur verið aflýst vegna eldgossins í Grímsvötnum. Hljómsveitin átti að koma frá Amsterdam í dag en vegna gossins liggur allt flug niðri.

Öllu flugi innanlands aflýst

Allt flug Flugfélagsins Ernis fellur niður í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fara átti tvær ferðir til Eyja, og eina á Höfn, Bíldudal og Sauðárkrók. Með félaginu áttu bókað úm 150 manns, að fram kemur í tilkynningu.

Sjáðu myndirnar - eldgos í Grimsvötnum

Visi hefur borist fjölda mynda af eldgosinu í Grímsvötnum. Það er með ólíkindum að sjá breytingarnar á meðfylgjandi myndum sem Friðrik Páll Friðriksson ljósmyndari tók á Fosshótelum í Skaftafelli. Fyrri myndin er tekin 21. maí klukkan 20:20 og síðari 22. maí, snemma morguns klukkan 07:03. Þá má einnig sjá myndir eftir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara, Egil Aðalsteinsson kvikmyndatökumann, Magnús Kristinsson frá Nónvörðu í Keflavík og íbúa í Vatnsendahverfi.

Gosið sást greinilega frá Reykjavík

Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum.

Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af öskufallinu

"Við höfum þessa bitru reynslu úr Eyjafjallajökli hvernig þetta getur verið og staðið jafnvel lengi yfir og haft mikil áhrif á fólkið,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavörnum. Hann segir mikið öskufall vera í kringum Kirkjubæjarklaustur, bæði vestur út á Mýrdalssand og austur á Skeiðarársand. Þjóðveginum er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi.

Keflavíkurflugvelli lokað klukkan hálfníu

Keflavíkurflugvelli verður lokað kl. 08:30. Sú lokun er byggð á spá frá bresku veðurstofunni. Þetta segir í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.

Kraftur gossins svipaður

"Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi.

Björgunarsveitir hafa þurft frá að hverfa

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi hafa verið að störfum í nótt og í morgun vegna eldgossins í Grímsvötnum. Björgunarsveitamenn hafa dreift grímum og gleraugum á meðal íbúa á öskufallssvæðinu og aðstoðað bændur við að koma lambfé í hús.

Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö

Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×