Lyfjaneysla Íslendinga afleiðing af slöku velferðarkerfi? Anna Birna Jensdóttir skrifar 18. mars 2011 06:00 Athygli vekur endurtekinn fréttaflutningur um lyfjanotkun Íslendinga. Þjóðin hefur verið methafi langtímanotkunar á svefn- og kvíða (róandi)lyfjum sem og geðlyfjum í áratugi samanborið við vestræn lönd. Lyfjanotkun eykst með aldrinum og er mest hjá 70 ára og eldri. Íbúar hjúkrunarheimila sem eru að meðalaldri 84 ára, nota ennfremur verulega meira af lyfjum í fyrrnefndum lyfjaflokkum en íbúar hjúkrunarheimila í öðrum löndum. Hvað veldur og hvaða skýring er á því að þrátt fyrir að þessi þekking um ástandið í lyfjamálum hafi legið fyrir svo áratugum skiptir að ekki hefur verið ráðist í umbótastarf. Að hvaða leyti er þjóðfélagið okkar frábrugðið, að réttlætanlegt eða þörf sé á að nota svefnlyf, róandi lyf og geðlyf í þessum mæli? Íslendingar hampa því á tyllidögum að hér sé skipulagt norrænt velferðarkerfi og að við verður allra manna elst. Því ætti að fylgja vellíðan þar sem ofnotkun lyfja væri óþörf. Þegar aldurinn færist yfir og líkaminn byrjar að hnigna og slitna fara að koma fram sjúkdómar sem oftar fylgja hækkandi aldri. Þá koma heilbrigðisvísindin mjög að gagni og lyfjanotkun dregur úr afturför, eykur vellíðan og lífsgæði einstaklinga samhliða heilsueflingu og annarri meðferð s.s. þjálfun, aukinni hreyfingu og útivist. Lykilatriði er að lyfjanotkun geri gagn, sé örugg og hagkvæm.Breytingaskeið Einstaklingurinn gengur í gegnum mikið breytingaskeið þegar líður að skilgreindum ellilífeyrisaldri samkvæmt lögum. Samfélagið hefur búið sér til reglur sem steypa aldurshópinn í eitt. Ákveðið er hvenær launavinnu skuli hætt, hvaða ráðstöfunartekjur eru nægjanlegar og margvíslegar skorður eru settar á daglegt líf. Flestir þurfa að hlíta þessum lögmálum óháð heilsufari, vilja eða félagslegri stöðu. Munur getur verið mikill á aðstæðum karla og kvenna, einstæðinga og fólks í sambúð, launamanna og atvinnurekenda. Í raun tapast ákveðið sjálfræði og tök á eigin fjármálum. Möguleikar til að afla aukinna tekna verður illmögulegur. Samhliða getur fólk verið að glíma við sjúkdóma og afleiðingar þeirra s.s. verki og þá staðreynd að samtímamönnun fækkar jafnt og þétt. Það er mikill missir að ganga í gegnum breytingar á eigin stöðu, jafnvel heilsufari og að missa sína nánustu. Kvíði grípur um sig og þunglyndi og einangrun getur ágerst. Svefn getur truflast vegna kvíðans og andlegra og líkamlegra verkja. Þá er gripið til lyfjagjafanna sem vissulega geta átt rétt á sér tímabundið. Því miður er eins og skorti á önnur verkfæri hér á landi til aðstoðar fólki og lyfjanotkunin verður að langtímanotkun. Eldar eru slökktir í stað þess að fyrirbyggja eldinn. Fylgikvillar langtímanotkunar eru jafnvel farnir að hafa verri áhrif en gagnsemi lyfs.Þriðjungur á hjúkrunarheimilum Um þriðjungur aldurshópsins 67 ára og eldri býr á hjúkrunarheimilum. Þar er meðalaldur 84 ára. Hjá þeim einstaklingum hefur heilsufar hnignað með þeim hætti jafnt og þétt að þeir geta ekki annast eigið heimilishald, né daglegar þarfir sínar án hjúkrunar allan sólarhringinn. Heilabilun hrjáir stærstan hluta þeirra, síðan hjarta- og lungnasjúkdómar, gigt, þunglyndi, kvíði, langvinnir hrörnunarsjúkdómar, krabbamein, blóðsjúkdómar, sykursýki og léleg nýrnastarfsemi. Verkir eru daglegt viðfangsefni. Eðli málsins samkvæmt nota íbúar hjúkrunarheimila einna mest af lyfjum hér á landi, yfir 60% þeirra nota yfir 9 lyfjategundir að meðtöldum bætiefnum s.s. lýsi og ávísuðum vítamínum. Langflest þessara lyfja hefur verið ávísað löngu áður en flutningur á hjúkrunarheimilið átti sér stað. Í aðdraganda flutnings á hjúkrunarheimili hefur umönnun verið að mestu í umsjá fjölskyldu, þar sem hún er til staðar. Töluvert vantar uppá að boðið sé uppá heildræna heimaþjónustu þar sem fjárveitingar eru of lágar til að tilætluð markmið laganna séu raunhæf. Valfrelsi er jafnframt takmarkað um hvert hægt er að leita eftir þjónustu.Baráttan við kerfið Bráðainnlagnir á sjúkrahús, jafnvel endurteknar er reynsla flestra og baráttan við kerfið um að fá mat á því hvort vistunar er þörf. Rétturinn til vistunarmats er ekki til staðar nema að uppfylltum fjölmörgum skilyrðum þar sem markópurinn er allur settur undir sömu viðmið. Slík lífsreynsla bægir ekki frá kvíðanum. Einstaklingurinn þarf að takast á við að aðstæður séu orðnar þannig að hann/hún er orðin öðrum háður, fjölskyldu sinni og kerfinu. Orðin fyrir á bráðasjúkrahúsinu, bíðandi eftir mannsæmandi búsetu og hjúkrun. Valfrelsi um hjúkrunarheimili er í raun ekki, umsóknareyðublaðið segir til um að velja þurfi þrjá staði. Síðan þarf nánast að taka það sem fyrst býðst. Kvíðinn, hvert fer maður, fær maður einbýli eða þarf að búa með ókunnugum. Búsetan á sjúkrahúsinu gæti skilið eftir sig margvíslega reynslu af sambýli með fárveiku fólki, jafnvel fólki í ruglástandi. Við flutninginn tapast sjálfræði á eigin fjármálum. Ríkið hefur ákveðið að rúmlega 60 þúsund sé það sem manneskja á hjúkrunarheimili ber að hafa milli handanna. Aðrar tekjur fara til greiðsluþátttöku í dvalar-og umönnunarkostnaði, þar með talið lyfjakostnaði upp að rúmlega 290 þúsund króna hámarki í greiðsluþátttöku. Hjúkrunarþarfir og félagslegar þarfir kalla á meiri ummönnunartíma en rekstur hjúkrunarheimila leyfir. Samsetning starfsfólks þarf að byggja á meiri fagþekkingu en fjárheimildir hjúkrunarheimila gera ráð fyrir. Sú staðreynd hefur þær afleiðingar að það er erfitt að ná viðhlítandi árangri í gæðaumbótastarfi hvort heldur um er að ræða lyfjameðferð, eða lífsgæðatengda þætti eins og félagslega virkni, útivist, líf án verkja og depurðar og hegðunarvandamála. Fjárlög íslenska ríkisins ákvarða fjárveitingar til reksturs hjúkrunarheimila. Fátt virðist í augsýn til umbóta í þessum efnum. Haldbærasta skýringin er hversu aldurstengdir fordómar og forræðishyggja eru ríkjandi í okkar þjóðfélagi. Norræna velferðarkerfið í málefnum eldri borgara á Íslandi er að ríkið sjái fyrir lágmarksþörfum. Verður framtíðin þannig að ,,Hver er sinnar gæfu smiður" hvað viðbótarþjónustu varðar umfram lágmarksþjónustuna sem velferðakerfið smíðar okkur til handa? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 1-10, litir eða bókstafir – um hvað snýst málið? Ragnheiður Stephensen Skoðun Borgarlínan og umferðin í Grafarvogi Þórir Garðarsson Skoðun Að bæla niður öfgar með öfgum Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Eðli umburðarlyndis hægrimanna Sigurður Örn Stefánsson Skoðun Nýju fötin keisarans – Einfaldað í þykjustunni Árni Davíðsson Skoðun Sterkur og skapandi Garðabær Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir Skoðun Þjónustuskerðing Sorpu Baldur Guðmundsson Skoðun Hveragerði klippt í sundur Arnar H. Halldórsson,Hjálmar Trausti Kristjánsson Skoðun Svartir blettir á upplýsingarétti almennings Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Frá sigri mannsandans yfir í neyðarástand María Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja – mikilvægur þáttur í rekstrinum Sigrún A. Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Sterkari velferð – betri Hafnarfjörður Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Hlutverk háskóla í gervigreindarbyltingunni Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar Skoðun Flug með fortíð og framtíð Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir,Helgi Karl Guðmundsson,Finney Rakel Árnadóttir,Sigurður Jón Hreinsson,Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir,Úlfar Logason,Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar Skoðun Eineltissamfélagið Ísland – umfjöllun Berlingske Tidende um Ísland Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Þétting byggðar og grænu svæðin í Kópavogi Beitir Ólafsson skrifar Skoðun Nýju fötin keisarans – Einfaldað í þykjustunni Árni Davíðsson skrifar Skoðun Þjónustuskerðing Sorpu Baldur Guðmundsson skrifar Skoðun Hvert er erindið? Orri Björnsson skrifar Skoðun Góð byrjun er pólitískt val Guðrún Rakel Svandísardóttir skrifar Skoðun Er það vinna að vera heima með börnum sínum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjölskylduvænt samfélag í verki Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Eðli umburðarlyndis hægrimanna Sigurður Örn Stefánsson skrifar Skoðun Hið fullkomna (Evrópu)samband Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Fjölmenningin í Hafnarfirði! Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Þjónustumiðstöð 60+ í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Anna Jórunn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Að bæla niður öfgar með öfgum Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun 1-10, litir eða bókstafir – um hvað snýst málið? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Samfélag sem stendur með fólki Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Sterkur og skapandi Garðabær Vilborg Anna Strange Garðarsdóttir skrifar Skoðun Frá sigri mannsandans yfir í neyðarástand María Pálsdóttir skrifar Skoðun Svartir blettir á upplýsingarétti almennings Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Borgarlínan og umferðin í Grafarvogi Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fossvogslaug – góð hugmynd, engin framkvæmd Sigfús Aðalsteinsson,Hlynur Áskelsson skrifar Skoðun Þetta segir fundargerð ESB frá 18. desember 2012 um aðlögun Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Skilvirkni og gagnsæi í málefnum flóttafólks Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Nei eða já, af eða á Ásgeir Þorgeirsson skrifar Skoðun Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Harpa Cilia Ingólfdóttir skrifar Skoðun Yfirfull fangelsi – og enginn skilur neitt í neinu Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða, aldursfordómar og mannleg reisn Berglind Indriðadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Eigið eldvarnaeftirlit fyrirtækja – mikilvægur þáttur í rekstrinum Sigrún A. Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Flug með fortíð og framtíð Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir,Helgi Karl Guðmundsson,Finney Rakel Árnadóttir,Sigurður Jón Hreinsson,Hrafnhildur Hrönn Óðinsdóttir,Úlfar Logason,Sigurrós Elddís Huldudóttir skrifar
Skoðun Eineltissamfélagið Ísland – umfjöllun Berlingske Tidende um Ísland Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Þjónustumiðstöð 60+ í Hveragerði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Anna Jórunn Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Harpa Cilia Ingólfdóttir skrifar