Afmælishátíð Party Zone um helgina 1. september 2010 15:30 Party Zone blæs í veislulúðrana á laugardag.
Á laugardagskvöld verður haldin vegleg hátíð á Nasa í tilefni af 20 ára afmæli útvarpsþáttarins Party Zone. Þar verður mikið um dýrðir og ætlunin er að fagna og hampa síðustu 20 árum danstónlistarinnar. „Plötusnúðar og listamenn kvöldsins undirbúa nú hálfgerða slagaraveislu þar sem hver danstónlistarslagarinn og klassíkerinn verður látinn flakka án þess þó að gleyma nútímanum enda nóg um að vera í danstónlist nútímans,“ segir í tilkynningu. Gera má ráð fyrir að stór hluti plötusnúða landsins mæti á þetta kvöld ásamt unnendum þáttarins í gegnum árin. Á Facebook-síðu fyrir hátíðina er nú þegar komin skemmtileg stemmning þar sem plötusnúðarnir metast um það hver eigi besta uppáhaldssmellinn. Gus Gus, Human Woman og breski plötusnúðurinn Rhythmdoctor halda uppi fjörinu á Nasa. Einnig verður sérstakt PZ20 viðhafnarsett frá Margeiri og Árna E ásamt öðrum PZ-plötusnúðum síðustu ára. Gleðin hefst með boðspartýi fyrir velunnara þáttarins kl.22 um kvöldið en opnar fyrir almenning kl.23. Forsala miða á afmælishátíðina fer fram á midi.is og í verslunum Skífunnar. Party Zone hefur oft verið nefndur dansþáttur þjóðarinnar. Hann byrjaði á öldum ljósvakans haustið 1990 og hefur séð til þess að landinn fái sinn skammt af danstónlist allt frá því að rave-tímabilið var og hét. Þátturinn hefur undanfarin misseri staðið vaktina á Rás 2 en áður sleit þátturinn barnsskónum áf framhaldsskólastöðinni Útrás áður en hann flutti sig yfir X-ið þar sem hann var á árunum 1993 til 1998. Nánari upplýsingar má finna hér.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira