Innlent

Íbúar Íslands 318.200

Landsmönnum hefur ekki fjölgað frá síðasta ársfjórðungi
Landsmönnum hefur ekki fjölgað frá síðasta ársfjórðungi

Á Íslandi búa nú 318.200 manns, 160.000 karlar og 158.200 konur. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar yfir mannfjölda í lok þriðja ársfjórðungs. Engin fjölgun var frá fyrri ársfjórðungi. Erlendir ríkisborgarar sem hér búa eru 21.500. Á höfuðborgarsvæðinu einu búa 201.900 manns.

Á þriðja ársfjórðungi 2010 fæddust 1.300 börn, en 490 einstaklingar létust. Á sama tíma fluttust frá landinu 510 einstaklingar umfram aðflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 920 umfram aðflutta, en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 410 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Jafnmargir karlar og konur fluttu frá landinu.

Danmörk var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara, en þangað fluttust 650 manns í ársfjórðungnum af 1.900 alls. Næstflestir fóru til Noregs eða 540. Flestir erlendir ríkisborgarar fluttust til Póllands eða 230 manns af 640.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (400), Noregi (180) og Svíþjóð (140), samtals 710 manns af 980. Erlendir ríkisborgarar voru hins vegar flestir frá Póllandi, 290 af alls 1.100 erlendum innflytjendum.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×