Tvær nýjar frá Insol 13. febrúar 2010 03:00 Umslag annars nýja disksins Ísland skal aría griðland með Insol.
Tónlistarmaðurinn Insol (Ingólfur Sigurðsson) gaf nýlega út tvo diska með eigin músík. Þetta eru sólódiskar númer níu og tíu og heita Það og það og Ísland skal aría griðland. Insol hóf að gefa út tónlist árið 1998 og gerði átta diska til ársins 2003. Þá fór hann í langa útgáfupásu. Í fyrra gaf Brak-útgáfan út safnplötuna Hátindar, þar sem safnað var saman átján lögum frá ferlinum. Þar má meðal annars heyra lagið þekkta, „Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð?“ Nýju plöturnar með Insol sverja sig í ætt við fyrri verk. Það og það var að hluta til samin í kjölfar bankahrunsins og þar má heyra beitt lög eins og „Bankafylliríið er búið“ og „Borgaðu fyrir burgeisana“. Á plötunni syngur Insol auk þess að leika á gítar, munnhörpu og hljómborð. Á Ísland skal aría griðland er hins vegar ekkert hljómborð. Insol hefur löngum pælt í kenningum dr. Helga Pjeturs og á plötuumslaginu skrifar höfundur meðal annars: „Þeir sem ekki sætta sig við þróun heimsmálanna gætu fundið á diskinum eitthvað við sitt hæfi, en væntanlega móðgast sumir sem vilja ekki að arfleifð Þriðja Ríkisins sé endurskoðuð“. Báðir nýju diskarnir ásamt þeim eldri eru fáanlegir hjá listamanninum eða í verslunum Smekkleysu og Havaríi.
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Britney farin í meðferð Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira