Icelandair: Gert ráð fyrir lokun Keflavíkurflugvallar næstu tvo sólarhringa 23. apríl 2010 12:29
Icelandair hefur sett upp flugáætlun sína fyrir næsta tvo sólarhringa og miðar hún við áframhaldandi lokun Keflavíkurflugvallar. „Laugardag 24. apríl og sunnudag 25. apríl verður flugvöllurinn í Glasgow því miðstöð millilandaflugs Icelandair," segir í tilkynningu frá félaginu. Flugvélar Icelandair fljúga þaðan til og frá New York og Boston í Bandaríkjunum og til og frá Kaupmannahöfn, Osló, Amsterdam og London í Evrópu. „Tvisvar á dag er síðan flogið með farþega milli Glasgow og Akureyrar," segir ennfremur. „Því má segja að þeir sem fara til og frá Íslandi með Icelandair um helgina muni millilenda í Glasgow." Félagið hvetur farþega til þess að fylgjast vel með því hvernig flugi Icelandair til og frá landinu verður háttað því nauðsynlegt getur reynst að gera breytingar með skömmum fyrirvara. Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast með fréttum og upplýsingum um flugáætlun, komu og brottfarartíma fluganna, m.a. á www.icelandair.is. Þá segir að þjónustuver Icelandair verði opið um helgina en Icelandair hefur undanfarna daga unnið að viðbúnaðaráætlun ef til þess kæmi að Keflavíkurflugvelli yrði lokað vegna öskufallsins frá eldgosinu í Eyjafjallajökli. „Í undirbúningunum hefur verið lögð áhersla á að halda starfsemi félagsins gangandi, halda opnum flugsamgöngum milli Íslands og umheimsins og veita viðskiptavinum þjónustu. Áhafnir, tæknimenn, stjórnendur og þjónustufulltrúar eru komnir til Glasgow og munu vera þar starfandi eins lengi og þörf krefur."
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Níu gistu fangageymslur í nótt Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Sjá meira