Breiðavíkurnefnd: Kannað hvort rannsaka þurfi fleiri heimili 30. apríl 2010 19:19 Róbert Spanó, formaður nefndarinnar sem rannsakar starfsemi vistheimilanna, segir að frá því í september 2008 hafi nefndin tekið nær 300 viðtöl.
Fjöldi ungs fólks, sem segir að brotið hafi verið á sér á opinberum meðferðar- og vistheimilum, hefur leitað til Breiðavíkurnefndarinnar. Formaður hennar segir nefndina ekki rannsaka heimili sem starfrækt voru eftir árið 1992. Kannað verði hvort tilefni sé til að rannsaka nýrri heimili í ljósi þessara frásagna. Nefndin sem í fyrstu rannsakaði starfsemi Breiðavíkur hefur einnig kannað svipaðar stofnanir annars staðar á landinu svo sem Heyrnleysingjaskólann, Kumbaravog og skólaheimilið Bjarg. Nú rannsakar nefndin uppeldisheimilið Silungapoll, Jaðar og Reykjahlíð og hefur verið auglýst í blöðum eftir því að fyrrverandi vistmenn gefi sig fram til viðtals. Róbert Spanó, formaður nefndarinnar sem rannsakar starfsemi vistheimilanna, segir að frá því í september 2008 hafi nefndin tekið nær 300 viðtöl. „Í þeim viðtölum þá hafa einnig komið fram hjá sumum frásagnir sem þessir aðilar telja vera illa meðferð og ofbeldi á öðrum heimilum en þeim sem við erum að kanna þessa stundina. Eitt af því sem verður verkefni nefndarinnar þegar hún lýkur við störf sín í apríl 2011 er að taka afstöðu til þess hvaða tillögur á hugsanlega að gera um framhald könnunar af þessu tagi, þá geta upplýsingar sem við erum að fá í gegnum þessi viðtöl varpað ljósi á og kannski grundvöll fyrir slíkri könnun," segir Róbert. Hann segir engu fólki vísað frá þótt það komi frá heimilum sem eru utan þess sem nefndin á að kanna með lögum. Róbert segir að nú miði rannsóknin að heimilum sem starfrækt voru árið 1947 til 1992, eins og lögin séu þá geti þeir ekki fjallað um önnur vistheimili en þau sem ekki séu starfandi og því sé tímabilið eftir 1992 ekki á starfsviði nefndarinnar eins og er. „Öll viðtöl sem að við tökum og allar upplýsingar sem við fáum, við fáum líka upplýsingar í gegnum tölvupóst og síma, reynum við að skrá niður. Þannig að þessar upplýsingar liggi fyrir til að mat okkar sé sem áræðanlegast þegar þar að kemur."
Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent Fleiri fréttir Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Sjá meira