Lífið

Orgía á Playboy setrinu: Skiptust á að stunda kynlíf með Hugh Hefner

Fyrrverandi Playboy stúlka hefur rofið þagnarmúrinn og lýst á opinskáan hátt kynlífsorgíum með hinum 84 ára gamla Hugh Hefner á Playboy setrinu. Hún segir stúlkurnar hafa skipst á að stunda kynlíf með Hugh Hefner.

Partýin í Playboy setrinu eru löngu heimsfræg. Meðal annars stærði Ásdís Rán sig af því að hafa verið boðin í fögnuð í Playboy setrinu og lýsti heimsókninni í íslenskum fjölmiðlum. „Það var enginn dónaskapur í gangi," sagði Ásdís í viðtali við Vísi eftir heimsókn hennar á setrið.

Ofurfyrirsætan og fyrrverandi Playboy stúlkan, Kendra Wilkinson, hefur hins vegar aðra sögu að segja. Í bók hennar „Sliding into home," lýsir hún sinni reynslu af veislum Hugh Hefner. Þýska blaðið Bild fjallar um málið í dag.

„Hver á fætur annarri fóru stúlkurnar til Hugh Hefner og stunduðu kynlíf með honum í eina mínútu í senn. Ég tók eftir hverri hreyfingu. Svo var röðin komin að mér og ég verð að segja að þetta var mjög skrýtið."

Svona lýsir Kendra fyrstu orgíunni sem hún átti með gamla klámgrísnum Hugh Hefner.

Kendra Wilkinsen skildi við sukk lífernið árið 2008 og giftist fótboltamanninum Hank Baskett. Þau eiga saman sjö mánaða gamlan son.

Þess má geta að Ásdís Rán mun senn birtast á forsíðu búlgörsku útgáfu Playboy tímaritsins.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×