Innlent

Stálu fimm flatskjám og áfengi úr sumarbústöðum

Brotist var inn í fimm orlofshús í Selvík við Álftavatn í Grímsnesi í síðustu viku. Þjófarnir komust inn um glugga með því að spenna þá upp. Í öllum húsunum voru flatskjáir, sem allir voru teknir.

Að auki var brotist inn í þrjá aðra sumarbústaði í einkaeigu og eru staðsettir við Álftavatn. Úr þeim var flatskjáum, hljómflutingstækum, áfengi og ýmsu öðru. Í sumum húsanna hafði verið mikið rótað í skápum og hirslum.

Engar vísbendingar eru um hverjir þarna voru að verki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×