Lífið

Beyoncé er nútíma Pink Floyd

Gunni er mikill aðdáandi Beyoncé Knowles og hljómsveitarinnar Destiny´s Child.
Gunni er mikill aðdáandi Beyoncé Knowles og hljómsveitarinnar Destiny´s Child.

Poppsveitin Bermuda undirbýr tónleika til heiðurs söngkonunni Beyoncé Knowles og hljómsveitinni Destiny"s Child sem verða á Spot 4. nóvember. Allir helstu smellir þeirra verða fluttir, þar á meðal Single Ladies, Crazy in Love og Say My Name.

„Við höfum alltaf verið að spila eitthvað af þessum lögum á böllum. Það hefur alltaf hitt beint í mark þannig að við ákváðum að kýla á þetta," segir Gunni í Bermuda.

„Við erum búin að spila í Söngvakeppni framhaldsskólanna tvö ár í röð og erum búin að gera það skipulega og agað. Við ákváðum að hafa þetta verkefni þannig líka og æfa útsetningarnar á þessum lögum í þaula." Auk Bermúda-hópsins verða Stefanía Svavarsdóttir, Ingunn Hlín Friðriksdóttir og Ína Valgerður Pétursdóttir í bakröddum og á slagverk verður Brynjólfur Snorrason.

Mikið hefur verið um heiðurstónleika hér á landi fyrir eldri flytjendur á borð við Pink Floyd, Tom Waits og Bob Dylan en sjaldgæft er að yngri poppurum á borð við Beyoncé sé sýndur þessi heiður. „Hún er vinsælasta söngkonan í heiminum í dag og á langan og farsælan feril. Þetta er tónlist sem ég held að höfði til breiðari hóps og jafnvel yngri," segir Gunni, sem var sjálfur aðdáandi Pink Floyd þegar hann var yngri.

„Ég hlustaði mikið á Pink Floyd og var að spá í öllum upptökupælingunum en ég get ekki sagt að ég hlusti mikið á þá í dag. Ég hlusta mikið meira á R&B og hip hop. Ég er búinn að fylgjast mikið með Destiny"s Child og Beyoncé og það er mikið lagt í þessa tónlist. Það má segja að þetta sé nútíma Pink Floyd því það eru miklar pælingar á bak við þetta." - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.