Innlent

Húsasmiðjuauglýsingar bannaðar - gátu ekki sannað fullyrðingu sína

Húsasmiðjan.
Húsasmiðjan.

Neytendastofa hefur bannað Húsasmiðjunni að notast við fullyrðinguna „Lægsta lága verðið" í auglýsingum sínum.

Neytendastofa fór fram á það við Húsasmiðjuna að hún færði sönnu á fullyrðinguna eins og lög gera ráð fyrir í kjölfar þess að auglýsingarnar fóru að birtast á öldum ljósvakans.

Í skýringum Húsasmiðjunnar kom fram að fullyrðingin vísaði til þess að valdar vörur væru á því lægsta verði sem Húsasmiðjan gæti boðið viðskiptavinum sínum upp á. Með henni væri því ekki vísað til keppinauta.

Neytendastofa féllst ekki á þessar skýringar og taldi fullyrðinguna vísa til þess að af þeim verslunum sem bjóða umræddar vörur sé það lægst hjá Húsasmiðjunni.

Þá taldi stofnunin að þær skýringar sem fram kæmu í auglýsingunum kæmu ekki í veg fyrir þann skilning að vísað væri til keppinauta.

Þar sem ekki komu fram fullnægjandi sönnun á fullyrðinguna að mati Neytendastofa var því litið sem svo á að hún væri villandi gagnvart neytendum og til þess fallna að hafa áhrif á ákvörðun þeirra um viðskipti.

Auk þess sem fullyrðingin bryti gegn keppinautum Húsasmiðjunnar. Neytendastofa bannaði því birtingu fullyrðinganna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×