Kragh hefur óskað eftir endurupptöku sakamáls vegna orða burðardýrs Breki Logason skrifar 20. október 2010 19:32 Þorsteinn Kragh fékk sjö og hálft ár fyrir risasmygl.
Þorsteinn Kragh, sem afplánar níu ára fangelsisdóm vegna smygls á tæplega 200 kílóum af fíkniefnum, hefur sent inn formlega beiðni til Hæstaréttar um endurupptöku á máli sínu. Enskukunnátta hollensks burðardýrs virðist lykilatriði í því hvernig beiðni Þorsteins verður tekið. Í fréttum okkar fyrir skömmu sögðum við frá því að burðardýrið í máli Þorsteins, Hollendingurinn Jacob Van Hinte, hefði skrifað bréf úr fangelsinu á Litla-Hrauni, þar sem hann sagði Þorstein saklausan í málinu. Hann væri fórnarlamb glæpagengsi í Hollandi sem væri raunverulegur skipuleggjandi smyglsins. Helgi Jóhannesson verjandi Þorsteins, staðfestir í samtali við fréttastofu að Þorsteinn hafi sent Hæstarétti formlega beiðni um endurupptöku málsins, en ekkert svar hafi borist þaðan. Rökin fyrir endurupptökunni, eru meðal annars þær upplýsingar sem fram koma í bréfinu umrædda. Þar biður Jacob Þorstein meðal annars um að fyrirgefa sér að hafa bendlað hann við málið, en segir að líf sitt hefði annars verið í hættu. Hann sé nú orðinn heilsuveill, eigi skammt eftir ólifað, og vilji skilja við guð og menn með hreina samvisku. Lögregla telur bréfið afar ótrúverðugt og efast í raun um að Jacob sjálfur hafi ritað það. Meðal annars vegna þess að það sé skrifað á ensku sem sé ekki hans sterkasta hlið. Athygli vekur hinsvegar að enskukunnátta Jacobs var ekki dregin í efa þegar málið var flutt fyrir dómi. Þá bað Jacob sjálfur um að túlkað yrði fyrir sig á ensku, frekar en hollensku, og var Ellen Ingvadóttir löggiltur dómtúlkur fengin til þess. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun Jacob nær eingöngu hafa leigt sér enskar bækur á bókasafninu á Litla-Hrauni, auk þess sem hann var áskrifandi af New York Times. Jacob afplánar nú sjö og hálfs árs fangelsisdóm í Hollandi, en hann mun sjálfur hafa farið þess á leit við fangelsismálayfirvöld að fá að ljúka afplánun í heimalandinu.
Mest lesið „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Fleiri fréttir Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Viðreisn velur oddvita „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Sjá meira