Aukin ábyrgð og stærri og færri ráðuneyti 15. maí 2010 06:00 Stjórnarráð íslands Starfshópurinn, sem Gunnar Helgi Kristinsson veitti formennsku, leggur til ýmsar breytingar á starfsemi Stjórnarráðsins.fréttablaðið/gva
Starfshópur forsætisráðuneytisins leggur til umfangsmiklar breytingar á stjórnsýslunni og stjórnarskránni í kjölfar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Áhersla er lögð á færri og stærri ráðuneyti, söfnun upplýsinga og að ráðherrar beri aukna ábyrgð. Starfshópurinn tekur í meginatriðum undir aðfinnslur rannsóknarnefndarinnar. Hans var að útfæra hugmyndir um hvernig brugðist yrði við þeim og útfæra nánar þær breytingar sem ráðast ætti í og beina sjónum sínum að stjórnsýslunni og stjórnarráðinu. Niðurstaða starfshópsins er að mjög mikilvægt sé að tillögum í skýrslunni sé fylgt. Ýmis atriði eru komin á rekspöl, til að mynda er starfandi nefnd um endurskoðun á lögum um Stjórnarráð Íslands og tengdri löggjöf. Starfshópurinn leggur til að ýmsum atriðum verði vísað til þeirrar nefndar. Auk þeirra tillagna rannsóknarnefndarinnar sem starfshópurinn mælist til að farið sé eftir, leggur hann til beinar aðgerðir í níu liðum. Þegar þeir eru skoðaðir sést að efling ráðuneyta er ofarlega í huga hópsins. Hann leggur mikla áherslu á að þau verði stærri og öflugri stjórnsýslueiningar og embættismönnum verði betur gert kleift að sinna skyldum sínum. Það á einnig við um ráðherra, en því er velt upp hvort ekki eigi að rýmka heimildir þeirra til að ráða sér pólitíska aðstoðarmenn. Þá er einnig lögð rík áhersla á að ábyrgð sé skýrð; bæði ráðherra og embættismanna. Ljóst verði að vera hverju sinni hvar hún liggi.Efla upplýsingar og eftirlitGUNNAR HELGI KRISTINSSONÍ því skyni er lagt til að komið verði upp óháðu eftirliti með ráðuneytum. Lagt verði mat á frammistöðu æðstu stjórnenda. Þá þurfi að lögfesta skyldur og ábyrgð embættismanna betur, ekki síður en ráðherranna sjálfra. Meðal þess sem starfshópurinn leggur til að gert verði er að stuðla að svokölluðum samstöðuskapandi stjórnmálum. Með því er átt við að sá hópur sem kemur að ákvörðunum verði víkkaður út. Þar er horft til þess að stjórnarandstaðan sé höfð með í ráðum. Í því skyni leggur hópurinn til að hlutverk Alþingis verði eflt. Þá er mikið lagt upp úr því að upplýsingasöfnun sé ábótavant. Gera verði gangskör að því að bæta hana, bæði hvað varðar formlega og óformlega fundi. Það nái einnig til munnlegra upplýsingar. Hópurinn varar þó við því að upplýsingalög megi ekki koma í veg fyrir samráð, eða samstarf, á milli stjórnvalda. Starfshópinn skipuðu þau Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, sem gegndi formennsku, Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, Ómar H. Kristmundsson, prófessor í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands, Kristín Benediktsdóttir hæstaréttarlögmaður og Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands. Með hópnum starfaði Ágúst Geir Ágústsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu.
Mest lesið Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Innlent Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Innlent Barn í hoppukastala sem tókst á loft Innlent Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Innlent Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Innlent Fleiri fréttir Einn í haldi vegna rannsóknar á mannsláti í Kópavogi Gæti tekið nokkrar vikur að vísa Bandero-liðum úr landi „Myndi hafa þveröfug áhrif ef seðlabankinn myndi hækka stýrivexti“ Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss Stefnir í stærstu Gleðigöngu sögunnar Banderofólki brottvísað og hinsegin dagar hafnir Gætu verið fluttir á brott um borð í Bandero Segir enga tryggingu fyrir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Barn í hoppukastala sem tókst á loft Spurningin kom Guðlaugi Þór í opna skjöldu Alvarlegt að ógna fólki með því sem það heldur að sé vopn Lögreglan mun fylgja skipverjunum úr landi Samræði við þrettán ára stjúpsystur ekki nauðgun að mati héraðsdóms Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Sjá meira