Beyoncé er nútíma Pink Floyd 29. október 2010 07:45 Gunni er mikill aðdáandi Beyoncé Knowles og hljómsveitarinnar Destiny´s Child.
Poppsveitin Bermuda undirbýr tónleika til heiðurs söngkonunni Beyoncé Knowles og hljómsveitinni Destiny"s Child sem verða á Spot 4. nóvember. Allir helstu smellir þeirra verða fluttir, þar á meðal Single Ladies, Crazy in Love og Say My Name. „Við höfum alltaf verið að spila eitthvað af þessum lögum á böllum. Það hefur alltaf hitt beint í mark þannig að við ákváðum að kýla á þetta," segir Gunni í Bermuda. „Við erum búin að spila í Söngvakeppni framhaldsskólanna tvö ár í röð og erum búin að gera það skipulega og agað. Við ákváðum að hafa þetta verkefni þannig líka og æfa útsetningarnar á þessum lögum í þaula." Auk Bermúda-hópsins verða Stefanía Svavarsdóttir, Ingunn Hlín Friðriksdóttir og Ína Valgerður Pétursdóttir í bakröddum og á slagverk verður Brynjólfur Snorrason. Mikið hefur verið um heiðurstónleika hér á landi fyrir eldri flytjendur á borð við Pink Floyd, Tom Waits og Bob Dylan en sjaldgæft er að yngri poppurum á borð við Beyoncé sé sýndur þessi heiður. „Hún er vinsælasta söngkonan í heiminum í dag og á langan og farsælan feril. Þetta er tónlist sem ég held að höfði til breiðari hóps og jafnvel yngri," segir Gunni, sem var sjálfur aðdáandi Pink Floyd þegar hann var yngri. „Ég hlustaði mikið á Pink Floyd og var að spá í öllum upptökupælingunum en ég get ekki sagt að ég hlusti mikið á þá í dag. Ég hlusta mikið meira á R&B og hip hop. Ég er búinn að fylgjast mikið með Destiny"s Child og Beyoncé og það er mikið lagt í þessa tónlist. Það má segja að þetta sé nútíma Pink Floyd því það eru miklar pælingar á bak við þetta." - fb
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira