Innlent

Kvíða sumrinu á Landspítalanum

Karen Kjartansdóttir skrifar

Mun fleiri deildum á Landspítalanum verður lokað í sumar en áður hefur tíðkast. Þórir Steingrímsson, formaður félags fólks sem hefur fengið heilablóðfall, segist mjög uggandi. Forstjóri spítalans segir þetta óumflýjanlegt og við blasir enn frekari niðurskurður á næsta ári.

Á tveimur árum hafa stjórnendur spítalans þurft að skera niður um sautján prósent í rekstri. Þá hefur starfsmönnum spítalans fækkað um 350 á síðustu misserum en þeir eru nú um 4600 talsins að því er fram kom í nýlegri samantekt Björns Zoëga forstjóra spítalans.

Nú blasir við að nauðsynlegt er að loka mun fleiri deildum á spítalanum yfir sumartímann en áður hefur tíðkast.

Þeir starfsmenn spítalans sem fréttastofa ræddi við í dag sögðu að mikill kvíði væri meðal starfsmanna fyrir sumrinu. Sérstaklega er rætt um þau vandkvæði sem skapast gætu ef taugadeild spítalans yrði lokað.

Björn segir að spítalinn hafi nú helmingi minna fé til að verja í laun sumaraflýsingafólks en var í fyrra. Því sé augljóst að færra fólk verði að störfum á deildunum. Því verði sameina deildir og loka, sumum í allt að tólf vikur.

Hann ítrekar að reynt verði að koma til móts við þarfir sjúklinga eftir bestu getu. Forsvarsmenn og sjúklingar geri sér almennt vel grein fyrir þeim þrengingum sem nú ríkja í spítalanum.

Enn á þó eftir að þrengja í búi Landspítalans því á næsta ári er talið að þar verði að skera niður um tíu prósent til viðbótar við það sem þann niðurskurð sem þegar hefur gengið í gegn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×