Röggi segir fréttir að norðan 18. mars 2010 06:00 Rögnvaldur gáfaði Fer með gamanmál á Spot í Kópavogi á laugardagskvöld.
Akureyringar á höfuðborgarsvæðinu ætla að hittast og gera sér glaðan dag saman á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi á laugardagskvöldið. Skriðjöklar, Bravó-bítlarnir, Hunang og Dægurlagapönkhljómsveitin Húfa troða upp auk þess sem Rögnvaldur gáfaði og Kalli Örvars ætla að fara með gamanmál. Rögnvaldur gáfaði, sem er jú í Dægurlagapönkhljómsveitinni Húfu man ekki hvenær hljómsveitin spilaði saman síðast. „Það er orðið mjög langt síðan. Sex eða sjö ár örugglega. Nei, ég lýg því. Við tókum eina tónleika á Græna hattinum svona sirka 2006. Það ætlaði allt vitlaust að verða." Kunnið þið þetta enn þá? „Það kemur í ljós. Við ætlum að hittast á föstudagskvöldið og rifja þetta upp og sjá hvort við getum spilað þetta. Þetta var svo ískyggilega hratt allt að ég held að við verðum að hægja eitthvað á þessu." Þið Karl Örvarsson ætlið að grínast, gerið þið það saman eða hvor í sínu lagi? „Ég veit það ekki, það fer eftir stemningunni. Annars byrjuðum við Kalli saman í hljómsveitarbransanum á sínum tíma. Þá bjuggum við báðir í Grænumýrinni og stofnuðum Sýklana. Við vorum geðveikt frægir í Mýrunum." Hafa Sýklarnir aldrei komið saman aftur síðan þá? „Nei, en það stóð til í fyrra en datt uppfyrir. Það átti að hóa saman nokkrum gömlum Akureyrarböndum hér fyrir norðan. En svo vildu menn fá borgað flug og hótel og það komast ekki nema 200 manns á Græna hattinn þannig að þetta var orðið of dýrt áður en það var komið af stað." En hvurslags grín ætlarðu að bjóða upp á á Spot? „Þar sem gestirnir verða líklega aðallega brottfluttir Akureyringar ætla ég að flytja þeim fréttir að norðan. Til dæmis ætla ég að segja frá því að Ella og Salomon eru að fara að opna sushi-stað. Þetta verður ekki dæmigerður sushi-staður heldur sushi-kjúklingastaður. Ég ætla að segja þessa frétt og fleiri. Það er alltaf eitthvað að gerast hérna." - bþs
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira