Rafópera um dauðann 30. janúar 2010 06:00 úr farfuglinum Óperan verður frumsýnd í Salnum í dag en hún er hluti af Myrkum músíkdögum.
Í dag kl. 17 frumsýnir Strengjaleikhúsið óperuna Farfuglinn eftir Hilmar Þórðarson í Salnum, Kópavogi. Frumsýningin er hluti af Myrkum músíkdögum. Óperan fjallar um dauðann, en handritið er unnið upp úr Móðurinni, sögu H.C.Andersen og Farfuglum, ljóðabók Rabindranath Tagore. Verkinu er ekki síst ætlað að höfða til ungs fólks og í því er leitast við að draga fram fegurðina að baki þeirri staðreynd að dauðinn er áframhald og afleiðing lífsins. Í verkinu er blandað saman lifandi tónlistarflutningi og rafhljóðum. Áhorfendur fá aðgang að tæknigöldrum raftónlistarinnar um leið og þeir njóta söngs og hljóðfæraleiks tónlistarmanna í fremstu röð. Markmiðið er að kynna fyrir yngri kynslóðinni nýsköpun í íslenskri tónlist í formi nútímaóperu og þá möguleika sem það listform hefur upp á að bjóða með tilkomu tölvutækninnar. Flytjendur eru Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran, Jóhann Smári Sævarsson bassi, Halla Messíana Kristinsdóttir sópran, Melkorka Ólafsdóttir þverflautur, Rúnar Óskarsson klarinettur og Gísli Galdur Þorgeirsson rafslagverk og hljóð. Handrit, leikstjórn, leikmynd og búningar eru í höndum Messíönu Tómasdóttur. Skólasýningar á óperunni verða 1., 2., 3. og 4. febrúar á vegum Tónlistar fyrir alla í Kópavogi og opin kvöldsýning 8. febrúar. Hinn 23., 24. og 25. febrúar verða svo sýningar í Gerðubergi á vegum Tónlistar fyrir alla. - drg
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Patrick Stewart látinn Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira