Jenni flytur til Danmerkur 9. júlí 2010 11:00 Jenni flytur með fjölskyldu sína til Danmerkur þar sem hann og kona hans setjast á skólabekk.fréttablaðið/róbert „
Já það er rétt. Við fjölskyldan erum að flytja til Danmerkur,“ segir Jens Ólafsson, betur þekktur sem Jenni í Brain Police. Jenni leggur land undir fót í næstu viku til Danmerkur þar sem kona hans, Elín Hólmarsdóttir, bíður hans. Fjölskyldan ætlar að flytja til Århus þar sem Jenni hefur skráð sig í rafmagnsverkfræði og Elín í meinatækni. Jenni segir dóttur þeirra, sem er ellefu ára, vera mjög spennta fyrir því að prufa að búa í öðru landi. „Ég heyrði af því í gær að það væri ekki mikið um rokk í Danmörku þar sem allir strákarnir kunna að dansa. Þannig að ég er ekki viss hvernig landið liggur þarna í sambandi við rokkið,“ segir Jenni, spurður hvort hann ætli sér að grípa í míkrafóninn í nýju landi, en hann er af mörgum talinn einn öflugasti rokksöngvari landsins – og þótt víðar væri leitað. Fjölskyldan hefur lengi haft löngun til að breyta til og þar sem Brain Police er ekki starfandi í bili tóku þau ákvörðun um að stökkva á tækifærið. „Ég er að kveðja alla hér heima þessa dagana. Það var óvæntur hittingur hjá vinahópnum í gær og síðan ætla ég norður um helgina. Þar á ég tvær ömmur, eina langömmu og að sjálfsögðu fullt af vinum sem ég ætla að kveðja og svo fer ég bara út,“ segir söngvarinn spenntur fyrir þessu nýja ævintýri fjölskyldunnar. - ls
Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira