Raggi Bjarna syngur á Innipúkanum 22. júlí 2010 10:00 Raggi Bjarna syngur á Innipúkanum sem verður haldinn í níunda sinn um verslunarmannahelgina. „
Ég ætla bara að vera ég sjálfur," segir söngvarinn ástsæli Raggi Bjarna en hann kemur fram á tónlistarhátíðinni Innipúkanum sem verður haldin í níunda sinn í Reykjavík um verslunarmannahelgina. „Mér líst ótrúlega vel á þetta. Ég var með Dr. Spock í Vestmannaeyjum á Þjóðhátíð fyrir nokkrum árum, þannig að ég er vel undir þetta búinn," segir Raggi og hlakkar til að skemmta sér með unga fólkinu. „Ég ætla að syngja eitthvað af þessu fiftís-rokki. Síðan verður þetta eitthvert samkurl og ég syng kannski eitthvað með öðrum." Raggi fylgir þar með í fótspor ekki ómerkari manna en Ómars Ragnarssonar, Gylfa Ægissonar, Bjartmars Guðlaugssonar og Megasar sem hafa allir sungið á Innipúkanum undanfarin ár. Auk Ragga Bjarna koma fram á Innipúkanum í ár flytjendurnir Árstíðir, Berndsen, Jan Mayen, Markús & the Diversion Sessions, Me, the Slumbering Napoleon, Mr. Silla, Nóra, Nóló, Ojba Rasta, Retro Stefson, Retron og Snorri Helgason. Líkt og í fyrra stendur Innipúkinn yfir í þrjá daga; hefst föstudaginn 30. júlí og lýkur 1. ágúst. Heimili Innipúkans í ár eru tónleikastaðirnir Sódóma og Venue, sem standa hlið við hlið á Tryggvagötunni, auk Naustsins milli Tryggvagötu og Hafnarstrætis, sem verður lokað fyrir bílaumferð. Miðaverð á Innipúkann er 2.900 kr. fyrir alla þrjá dagana og hefst miðasala á Midi.is í dag. Næst á dagskrá hjá Ragga Bjarna áður en að Innipúkanum kemur er spilamennska í Allanum á Siglufirði á föstudagskvöld og í Kántríbæ á Skagaströnd á laugardagskvöld. - fb
Mest lesið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Bíó og sjónvarp „La La Höndin“ úr sögunni Lífið Ali G snýr aftur Bíó og sjónvarp Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Lífið Fleiri fréttir Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Sjá meira