Innlent

Mikilvægast að verja Gjástykki og Leirhnjúk, segir Ómar

Gjástykki og Leirhnjúkur eru heimsundur, segir Ómar Ragnarsson, sem telur stærsta málið í umhverfisvernd á Íslandi um þessar mundir að bjarga þeim frá því að verða iðnaðarsvæði.

Haustið 2006 fékk Ómar fimmtán þúsund manns í Jökulsárgönguna niður Laugaveg gegn Kárahnjúkavirkjun en það voru fjölmennustu mótmæli sem sést höfðu hérlendis í áratugi. Þegar Ómar er spurður hvert sé stærsta málið í umhverfisbaráttunni um þessar mundir horfir hann norður í Þingeyjarsýslur: Gjástykki og Leirhnjúkur, sem eigi enga hliðstæðu í heiminum.

Hann telur þetta einstakt svæði til að sýna ferðamönnum sköpun heimsins, meðal annars með hjálp kvikmynda af Kröflueldum. Þar megi búa til ferðamannamiðstöð sem veiti mörghundruð manns vinnu, - á heimsfrægum stað til heiðurs Íslendingum.

Í staðinn ætli menn að taka 30 megavött í Gjástykki. Þau skapi 20 störf í álveri í 50 kílómetra fjarlægð. Virtir prófessorar hafi reiknað út að virðisauki fyrir samfélagið af þessum 20 störfum sé á við 7 störf í ferðaþjónustu. Fórna eigi heimsundri fyrir 7 störf í verksmiðju.

Vegna fjárskorts hefur Ómar neyðst til að gera hlé á gerð fimm kvikmynda, sem hann vinnur að um hin ýmsu svæði á landinu, þar á meðal um Kárahnjúka. Peningar sem hann bjóst við að geta fengið til að klára verkið séu ekki til lengur. Hann verði að láta Leirhnjúk og Gjástykki hafa forgang en hann viti ekki hvernig eigi eftir að ganga með Örkina á Hálslóni.

"Ég hef orðið að eyða því sem ég átti, og meiru til, - bara að klára að taka þær myndir sem varð að taka. Ég er með allt þetta myndefni sem ekki er hægt að taka aftur, því það er búið að eyðileggja þetta allt," segir Ómar og bætir við:

"Ég get engu lofað um hvenær ég get klárað þessa mynd. Ég ætla að reyna með einhverju móti. En.. þetta er bara stopp."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×