Fótbolti

Eiður Smári í byrjunarliði Monaco

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári í leik með íslenska landsliðinu.
Eiður Smári í leik með íslenska landsliðinu. Mynd/Daníel
Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði AS Monaco sem mætir botnliði Grenoble í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Þetta kemur fram á heimasíðu Monaco en leikurinn hefst klukkan 18.00 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3.

Þetta er fyrsti leikur Eiðs Smára í byrjunarliði Monaco síðan í byrjun október en hann hefur verið frá undanfarnar þrjár vikur vegna meiðsla í öxl.

Eiður Smári hefur ekki náð að skora í fyrstu fjórum leikjum sínum með AS Monaco en nær vonandi að bæta úr því í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×